„Tímabilið leggst mjög vel í okkur. Ég tel okkur vera með sterkan hóp og góða liðsheild. Það er góð blanda í liðinu af reynslumiklum og efnilegum leikmönnum og ég hef fundið frá fyrsta degi í þeim leikmönnum sem voru hér að það er ofboðslega mikill vilji til að gera vel í sumar og taka skref fram á við. Með allt það í farteskinu leggst tímabilið virkilega vel í mig," segir Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkinga, fyrir tímabilinu sem er framundan.
Njarðvík er spáð þriðja sæti af þjálfururum og fyrirliðum fyrir komandi keppnistímabil.
„Spáin kemur ekkert á óvart. Mig grunaði að við myndum lenda í einhverju af þessum efstu sætum, enda er þetta gríðarlega sterk deild, með góðum liðum og góðum þjálfurum."
Töluvert frábrugðið því
Davíð Smári tók við Njarðvík í vetur eftir að hafa gert Vestra að bikarmeistara á síðasta tímabili. Hann segir að það hafi verið mjög skemmtilegt að mæta til félagsins.
„Það hefur verið mjög skemmtilegt. Mikil breyting og töluvert frábrugðið því sem ég upplifði í mínu fyrra starfi," segir Davíð.
„Hér fer mest öll þjálfun fram á íslensku og eins er leikmannamarkaðurinn opnari hér hvað varðar íslenska leikmenn. Viljinn í félaginu til að taka næsta skref er mikill og er alltaf gaman að vinna í þannig umhverfi, þar sem stjórn, leikmenn, þjálfarar og félagsmenn eru með markmið um að ná árangri og þróast sem félag."
Hann segir að það hafi gengið vel á undirbúningstímabilinu. „Það hefur í raun gengið mjög vel. Það hafa verið upp og niður frammistöður, margar mjög góðar. Við höfum spilað við mikið af sterkum andstæðingum úr efstu deild og eftir stendur eitt tap síðan í nóvember ef ég man rétt."
Mjög sáttur
Það hafa verið nokkrar breytingar á leikmannahópnum og margir sterkir leikmenn mætt til Njarðvíkur.
„Ég er mjög sáttur með hvernig við höfum fyllt í stór skörð sem við urðum fyrir á undirbúnigstímabilinu þegar Tómas og Oumar meiðast. Því miður er það staðreynd að Tómas verður ekki meira með þetta sumarið en Oumar verður klár fyrir fyrsta leik," segir Davíð.
„Einnig tel ég að liðið hafi gert virkilega vel í að styrkja ákveðnar stöður fyrir langt og erfitt tímabil sem framundan er. Við erum með stóran hóp þar sem allir leikmenn eru gríðarlega mikilvægir."
Hann býst við hörkudeild. „Ég sé deildina þannig fyrir mér að hún hafi aldrei verið sterkari. Þetta er nú oft sagt en staðreyndin er sú að hóparnir hjá mörgum liðum eru á pari við fín lið í efstu deild. Eins með þjálfarana, þá erum við með virkilega reynslumikla þjálfara sem gerir deildina líka taktískt sterkari en oft áður og mun það líklega sjást á deildinni í sumar."
„Við erum með 6-7 lið sem ætla sér öll það sama og ég sé ekki neitt lið stinga af. En það er líklegast að deildin gæti skipts í tvennt en það mun ekki breyta því að í þessu mótafyrirkomulagi verður hver einasti leikur ofboðslega mikilvægur."
Vita hvað það þýðir
Markmiðin hjá Njarðvíkingum eru skýr. „Markmiðin eru nokkuð skýr og það er að taka næsta skref sem lið frá því í fyrra og þeir sem þekkja hvernig deildin spilaðist í fyrra vita hvað það þýðir. Við þurfum að vera sterkara lið en við vorum í fyrra til að ná því, það er klárt," sagði Davíð og bætti við að lokum:
„Við þetta má bæta að ég hef fundið fyrir ofboðslegri orku í kringum Njarðvíkurliðið í Reykjanesbæ og á samfélagsmiðlum og ég skora á ALLA stuðningsmenn að hjálpa okkur að taka næsta skref sem félag. Það gerum við með samheldni og góðri mætingu. Við sem félag þurfum virkilega á stuðningi að halda í allt sumar frá fyrsta leik gegn Þrótti til hins síðasta. ÁFRAM NJARÐVÍK- FYRIR FÁNANN!"


