Miðjumaðurinn Alex Freyr Hilmarsson er algjör lykilhlekkur í liði ÍBV en hann var á bekknum í úrvalsliði ársins á síðasta ári.
Hann er fyrirliði ÍBV og var sárt saknað þegar Eyjamenn fengu 2-6 skell gegn KR á Hásteinsvelli í þriðju umferð Bestu deildarinnar í gær.
Hann er fyrirliði ÍBV og var sárt saknað þegar Eyjamenn fengu 2-6 skell gegn KR á Hásteinsvelli í þriðju umferð Bestu deildarinnar í gær.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 6 KR
„Alex Freyr fékk aftan í læri í leiknum gegn Val, smávægileg tognun. Vonandi verður hann ekki lengur frá en tvær til þrjár vikur," segir Óskar Elías Zoega Óskarsson, aðstoðarþjálfari ÍBV.
Sóknarmaðurinn Omar Sowe er að koma til baka úr erfiðum meiðslum en Óskar telur að það sé enn sirka mánuður í hann. Sowe sleit krossband í leik með liðinu í maí á síðasta tímabili.
Hermann Þór Ragnarsson verður þá frá næsta mánuð eftir að hafa farið í aðgerð í liðþófa.
Eyjamenn eru með eitt stig eftir þrjár umferðir í Bestu deildinni en þeir heimsækja Fram á mánudag.
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. KR | 3 | 3 | 0 | 0 | 14 - 6 | +8 | 9 |
| 2. Víkingur R. | 3 | 2 | 1 | 0 | 6 - 3 | +3 | 7 |
| 3. Valur | 3 | 2 | 0 | 1 | 6 - 3 | +3 | 6 |
| 4. Stjarnan | 3 | 2 | 0 | 1 | 8 - 7 | +1 | 6 |
| 5. Þór | 3 | 2 | 0 | 1 | 5 - 6 | -1 | 6 |
| 6. Breiðablik | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 - 1 | +1 | 5 |
| 7. Fram | 3 | 1 | 1 | 1 | 6 - 5 | +1 | 4 |
| 8. ÍA | 3 | 0 | 2 | 1 | 4 - 5 | -1 | 2 |
| 9. KA | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
| 10. Keflavík | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 6 | -3 | 1 |
| 11. FH | 3 | 0 | 1 | 2 | 3 - 7 | -4 | 1 |
| 12. ÍBV | 3 | 0 | 1 | 2 | 4 - 9 | -5 | 1 |


