Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
   fös 24. apríl 2026 00:00
Haraldur Örn Haraldsson
Jói Kalli: Klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er náttúrulega bara gríðarlega svekktur sérstaklega með hvernig við komum í leikinn, byrjum leikinn. Mér fannst við vera fara fram á við og við komumst í ágætis stöður í fyrri hálfleik til þess að búa okkur til færi, en varnarleikurinn og sérstaklega endur pressan þegar við erum að tapa boltanum hátt á vellinum var ekki gott. Við áttum rosalega erfitt með að eiga við framherjana hjá Val í skyndisóknunum. Við áttum erfitt með að verjast á stóru svæði, og halda línunni hátt. Það var eitthvað sem við ætluðum okkur ekki að gera, og fyrir vikið þá fáum við á okkur þessi þrjú mörk og réðum eiginlega ekkert við Valsarana í fyrri hálfleiknum, og töpum leiknum eiginlega þar. Það er erfitt að koma til baka eftir 3-0 í hálfleik," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH eftir 3-0 tap gegn Val í kvöld.


Lestu um leikinn: Valur 3 -  0 FH

Jóhannes talaði einnig um að liðið hafði átt slæman fyrri hálfleik gegn Stjörnunni í síðustu umferð, og því er þetta orðið að slæmu munstri sem þarf að lagfæra.

„Það er klárt að það er eitthvað sem við erum að gera rangt. Ég held að það sé alveg nokkuð ljóst, og sést alveg hvort það séu leikplanið eða hugarfarið, eða einhverskonar hræðsla, eða stress sem er að koma í mótið. Það er klárt að við þurfum að fara yfir það. Það er stutt í næsta leik og við þurfum að vera öflugir og sterkir karakterar. Fótboltinn getur verið svolítið 'brutal' stundum. Menn þurfa að vera sterkir og geta átt við mótlæti líka. Við þurfum að koma sterkir til baka það er alveg á hreinu," sagði Jóhannes.

Róbert Hugi Sævarsson er 16 ára strákur sem spilaði sinn fyrsta leik, en hann spilaði allan leikinn.

„Ég held að þegar þú horfir á hann spila, þá er ekki það fyrsta sem þú hugsar að hann er fæddur 2010. Því hann er hörku duglegur, góður á boltanum, mjög rólegur og yfirvegaður í hans leik. Auðvitað er það hræðilega erfitt að taka þátt í fyrsta leik í meistaraflokki hjá FH og vera 3-0 undir í fyrri hálfleik. Hann sýndi ansi sterkar taugar í seinni hálfleiknum, þorir alltaf að fá boltann, sýnir fram á við og bara hörku miðjumaður sem á framtíðina fyrir sér," sagði Jóhannes.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


Slapp
banner
banner