Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að Claudio Ranieri sé að yfirgefa starf sitt sem aðalráðgjafi AS Roma vegna ósættis við Gian Piero Gasperini þjálfara.
Stjórnendur Roma virðast hafa kosið að standa frekar við bakið á Gasperini sem var ráðinn sem aðalþjálfari síðasta sumar eftir níu mögnuð ár við stjórnvölinn hjá Atalanta.
Ranieri er fæddur í Róm og ólst upp hjá félaginu. Hann hóf atvinnumannaferilinn með AS Roma og tók við sem þjálfari aðalliðsins í þrígang.
Hann stýrði liðinu frá 2009 til 2011 og tók aftur við sem bráðabirgðaþjálfari 2019. Að lokum var hann ráðinn í nóvember 2024 og gerði frábæra hluti á síðustu leiktíð áður en Gasperini var ráðinn um sumarið.
Ranieri fékk tækifæri til að taka við ítalska landsliðinu síðasta sumar en hafnaði því til að starfa áfram hjá Roma sem aðalráðgjafi félagsins.
10.06.2025 10:30
Ranieri hafnar ítalska sambandinu




