Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
   fös 24. apríl 2026 09:35
Elvar Geir Magnússon
Woodman eða Alisson í marki Liverpool á morgun
Freddie Woodman.
Freddie Woodman.
Mynd: EPA
Joe Gomez snýr aftur.
Joe Gomez snýr aftur.
Mynd: EPA
Alisson Becker, markvörður Liverpool, er að snúa aftur eftir meiðsli og Arne Slot, stjóri liðsins, segir mögulegt að hann gæti spilað gegn Crystal Palace á morgun.

„Kannski kemur leikurinn of snemma, bíðum og sjáum," segir Slot.

Hann staðfestir að Giorgi Mamardashvili verði allavega frá næstu vikur en hann fór meiddur af velli í 2-1 sigrinum gegn Everton um síðustu helgi.

Freddie Woodman, þriðji markvörður, kom þá af bekknum og lék sinn fyrsta leik fyrir Liverpool. Hann er 29 ára og kom til félagsins frá Preston í fyrra.

„Hann er góður markvörður sem vann EM með U17 landsliðinu og HM með U20 á sínum tíma. Hann er með reynslu og ofan á allt annað þá er hann góður einstaklingur og góður í klefanum," segir Slot.

Þá er það að frétta af stöðunni á leikmannahópnum hjá Liverpool að Joe Gomez er mættur aftur eftir að hafa misst af grannaslagnum gegn Everton vegna meiðsla. Wataru Endo er á batavegi og Slot er bjartsýnn á að hann spili aftur áður en tímabilinu lýkur.

Liverpool er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar en stöðuna má sjá hér að neðan. Leikur Liverpool og Palace verður 14:00 á morgun.
Slapp
banner
banner