Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 22:14
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Botnliðið neitar að gefast upp
Espanyol sér ekki til sólar
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tveimur síðustu leikjum kvöldsins er lokið í efstu deild á Spáni þar sem botnlið Real Oviedo gerði jafntefli við Villarreal.

Nicolas Pépé, næstdýrasti leikmaður í sögu Arsenal, skoraði úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik til að taka forystuna fyrir Villarreal, en Ilyas Chaira jafnaði metin í síðari hálfleik.

Heimamenn voru sterkari aðilinn og komust nálægt því að sigra, en tókst ekki. Lokatölur urðu því 1-1 og er Oviedo sex stigum frá öruggu sæti í La Liga þegar sex umferðir eru eftir.

Oviedo er búið að ná í ellefu stig úr síðustu sex leikjum og getur gert atlögu að öruggu sæti í efstu deild með áframhaldandi góðu gengi. Villarreal siglir lygnan sjó í meistaradeildarsæti.

Rayo Vallecano og Espanyol áttust einnig við í kvöld. Þar fékk Kike García kjörið tækifæri til að ná forystunni fyrir Espanyol en hann klúðraði vítaspyrnu á 74. mínútu og gerði Sergio Camello sigurmark heimamanna í liði Vallecano á lokamínútunum.

Espanyol átti ótrúlegu gengi að fagna fyrir áramót og var liðið afar óvænt í baráttu um meistaradeildarsæti þegar Spánverjar fóru í jólafrí. Nýtt ár hefur ekki farið vel í menn þar á bæ þar sem liðið er enn án sigurs á árinu - með fimm jafntefli og tíu töp í fimmtán leikjum.

Espanyol og Vallecano eru jöfn á stigum um miðja deild, fimm stigum frá fallsæti. Þetta var dýrmætur sigur fyrir Vallecano til að forðast fallbaráttuna.

Real Oviedo 1 - 1 Villarreal
0-1 Nicolas Pepe ('13 , víti)
1-1 Ilyas Chaira ('69 )

Rayo Vallecano 1 - 0 Espanyol
0-0 Kike Garcia ('74 , Misnotað víti)
1-0 Sergio Camello ('87 )
Slapp
banner
banner