Franski miðjumaðurinn Paul Pogba, sem gekk í tvígang til liðs við Manchester United á ferli sínum sem atvinnumaður, hefur miklar mætur á fyrirliða félagsins Bruno Fernandes.
Hann telur Bruno þó vera alltof góðan fyrir Man Utd og heldur því fram að Portúgalinn gæti verið að berjast um Ballon d'Or verðlaunin ef hann væri hjá sterkara félagsliði.
Bruno er 31 árs gamall og hefur verið besti leikmaður Man Utd á tímabilinu. Hann er kominn með 18 stoðsendingar á úrvalsdeildartímabilinu og er aðeins tveimur stoðsendingum frá því að jafna deildarmet Thierry Henry og Kevin De Bruyne.
„Ef Bruno væri að leika fyrir Man City þá kæmi hann til greina í top 3 listann fyrir Gullboltann, er það ekki?" spurði Pogba þegar hann ræddi við Rio Ferdinand í hlaðvarpsþætti þess síðarnefnda.
„Miðað við hversu góður hann hefur verið á tímabilinu þá á hann heima meðal bestu fótboltamanna heims."
Pogba fór svo að bera Fernandes saman við sig sjálfan, enda leika þeir báðir sem miðjumenn þó að Pogba sé talsvert hávaxnari leikmaður.
„Ég veit að hann er ekki með sömu líkamsburði og ég þegar kemur að því að vinna skallabolta en hann getur gert allt annað. Hann er ótrúlegur fótboltamaður og væri með í umræðunni um besta fótboltamann heims ef hann myndi leika fyrir eitthvað topplið. Það er bara þannig.
„Allir fótboltamenn sem horfa á Bruno spila átta sig á því að þetta er leikmaður í hæsta gæðaflokki. Við getum borið hann saman við leikmenn á borð við Kevin De Bruyne, Luka Modric, Mesut Özil og Frank Lampard."



