Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fös 24. apríl 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía um helgina - Inter getur unnið titilinn
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
34. umferð ítalska deildartímabilsins fer fram um helgina og getur Inter tryggt sér Ítalíumeistaratitilinn stærðfræðilega með sigri og hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum.

Helgin byrjar í kvöld þegar ríkjandi meistarar Napoli mæta nýliðum Cremonese. Þeir þurfa á sigri að halda til að eiga örlítinn vonarneista um að verja titilinn, á meðan Cremonese er í bullandi fallbaráttu.

Á morgun eru þrír leikir á dagskrá þar sem mesta spennan er í Bologna þegar heimamenn spila við AS Roma í fjórða sinn á tímabilinu. Bologna er í slæmri stöðu í baráttunni um evrópusæti á meðan Rómverjar þurfa á sigri að halda í tilraun til að stela síðasta meistaradeildarsætinu undan nefinu á Juventus.

Verona og Lecce eigast svo við í fallbaráttunni eftir að Parma spilar við Pisa. Verona og Pisa eru svo gott sem fallin.

Sunnudagurinn hefst á tveimur Íslendingaliðum á heimavelli þegar Fiorentina og Genoa taka á móti Sassuolo og Como áður en Inter mætir til leiks gegn Torino.

Inter er með tólf stiga forystu þegar fimm umferðir eru eftir af deildartímabilinu.

AC Milan og Juventus etja kappi í lokaleik sunnudagsins sem er jafnframt stórleikur helgarinnar. Milan er jafnt Napoli á stigum í öðru sæti á meðan Juve þarf sigur til að bæta stöðu sína í baráttunni um meistaradeildarsæti.

Síðustu leikir umferðarinnar fara fram á mánudaginn þegar Cagliari tekur á móti Atalanta áður en Lazio fær Udinese í heimsókn.

Föstudagur:
18:45 Napoli - Cremonese

Laugardagur:
13:00 Parma - Pisa
16:00 Bologna - Roma
18:45 Verona - Lecce

Sunnudagur:
10:30 Fiorentina - Sassuolo
13:00 Genoa - Como
16:00 Torino - Inter
18:45 Milan - Juventus

Mánudagur:
16:30 Cagliari - Atalanta
18:45 Lazio - Udinese
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 25 3 5 78 29 +49 78
2 Milan 33 19 9 5 48 27 +21 66
3 Napoli 33 20 6 7 48 33 +15 66
4 Juventus 33 18 9 6 57 29 +28 63
5 Como 33 16 10 7 57 28 +29 58
6 Roma 33 18 4 11 46 29 +17 58
7 Atalanta 33 14 12 7 45 29 +16 54
8 Bologna 33 14 6 13 42 39 +3 48
9 Lazio 33 12 11 10 34 30 +4 47
10 Sassuolo 33 13 6 14 41 44 -3 45
11 Udinese 33 12 7 14 38 43 -5 43
12 Torino 33 11 7 15 37 54 -17 40
13 Genoa 33 10 9 14 40 46 -6 39
14 Parma 33 9 12 12 24 40 -16 39
15 Fiorentina 33 8 12 13 38 45 -7 36
16 Cagliari 33 8 9 16 33 47 -14 33
17 Cremonese 33 6 10 17 26 47 -21 28
18 Lecce 33 7 7 19 22 46 -24 28
19 Verona 33 3 9 21 23 56 -33 18
20 Pisa 33 2 12 19 24 60 -36 18
Slapp
banner
banner
banner