Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
„Kemur að leiknum sem við fáum á okkur minna en tvö mörk“
Sölvi hefur engar áhyggjur af sektum vegna blysa - „Voru einhverjir Blikar í Kópavoginum“
Samúel Kári: Á endanum verður maður líka að hugsa um sjálfan sig
Hemmi hæstánægður með stórsigurinn „Það mega allir halda áfram að blaðra og bulla"
Óskar búinn að æfa skallana - „Þeir eiga ekkert að gleyma mér“
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
Siggi Höskulds eftir stóran dag: Ein flottasta varsla sem ég hef séð
Hundóánægður með hugarfar Eyjamanna - „Margir höfðu ekki áhuga á að verjast“
Þurfa að endurmeta undirbúninginn - „Getum ekki boðið fólki upp á þetta"
Aron Sig: Þá er þetta dautt
Óskar Hrafn: Vona að það styttist í að menn haldi einbeitingu í 90 mínútur
Haraldur Freyr um völlinn: Hefur bara hellings áhrif
Stefan Ljubicic: Bara teipað og tvær til þrjár verkjatöflur
Óli ekki með miklar áhyggjur af bitleysi Blika - „Eigum eftir að laga þetta“
Stubbur: Jú jú, það var eitthvað að gera
Haddi: Fer ánægður með stigið norður
Lárus Orri: Hann hlýtur að vera í liði umferðarinnar
Davíð Smári: Gaman að byrja þetta með alvöru hvelli
Venni: Honum líður vel og er ekki að fara neitt
Mæta pressulausar inn í tímabilið - „Höfum trú á verkefninu“
   fim 23. apríl 2026 20:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrsta markið fyrir Þór var sérstakt - „Hef skorað mörk hægri vinstri í Noregi"
'Ég held að við séum ekki með svona stuðningsmannakúltúr heima í Noregi, kannski hjá sumum félögum, en þetta er eitthvað sérstakt'
'Ég held að við séum ekki með svona stuðningsmannakúltúr heima í Noregi, kannski hjá sumum félögum, en þetta er eitthvað sérstakt'
Mynd: Toggipop
Mynd: Þór
„Sem framherji hef ég alltaf skorað mörk en þetta var sérstakt mark. Venjulega eru þetta föst skot niðri í hornin úr teigum, ekki skot fyrir utan teig. Það mikilvægasta var samt sigurinn. Við sýndum mikinn karakter, við erum ungt lið, með marga unga leikmenn og ungir leikmenn sem koma inn. Ég er mjög ánægður með liðið í dag og þetta voru þrjú mikilvæg stig," segir Sebastian Haugland, framherji Þórs, sem skoraði sigurmarkið á nýja VÍS vellinum gegn Fram í dag.

Markið var hans fyrsta fyrir Þór en norski framherjinn var keyptur frá Hödd í Noregi í síðasta mánuði.

Lestu um leikinn: Þór 1 -  0 Fram

Framarar lágu á Þórsurum eftir markið hjá Haugland en gestirnir náðu ekki að skora.

„Fyrstu vikurnar hjá Þór hafa verið mjög góðar, hópurinn er mjög góður. Mér líður eins og þetta sé orðið heima þrátt fyrir að ég hafi bara verið hér í 3-4 vikur. Strákarnir hafa hjálpað mér, tekið mér eins og einum af hópnum. Þetta var góður dagur í dag, svona mark og þrjú stig."

„Ég veit að ég skora mörk, ég hef skorað mörk hægri vinstri heima í Noregi svo ég veit að ég skora alltaf. En þú ert alltaf á höttunum eftir þínu fyrsta og það er smá léttir að skora það. En ef ég skora ekki þá erum við með aðra sem skora, Ingimar (Arnar Kristjánsson) hefur verið mjög góður á tímabilinu líka. Við erum vel mannaðir frammi."


Hrósar Mjölnismönnum í hástert
Hvernig var að upplifa stemninguna á þessum fyrsta heimaleik liðsins?

„Það var mjög gaman, þeir settu standardinn mjög hátt með stuðningnum á móti Val og KR úti. Núna sáum við hvernig þetta getur verið á heimavelli líka. Þetta gefur okkur svo mikla orku, þetta er ótrúlegt. Ég held að við séum ekki með svona stuðningsmannakúltúr heima í Noregi, kannski hjá sumum félögum, en þetta er eitthvað sérstakt," segir Haugland.
Slapp
banner
banner