„Mér líður frábærlega, þetta var stór dagur fyrir okkur, fyrsti heimaleikur og við að vígja nýjan völl. Það var stemning, taugar og eftirvænting. Þeir stuðuðu okkur aðeins með tempóinu í pressunni og við vorum með lúmskan vind í smettið. Eftir fyrstu fimmtán fannst mér þetta jafnast út," segir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, eftir sigur á Fram í dag.
Sigurinn var fyrsti heimasigur Þórs í efstu deild frá 2014 og fyrsti sigurinn á glænýjum VÍS velli.
Sigurinn var fyrsti heimasigur Þórs í efstu deild frá 2014 og fyrsti sigurinn á glænýjum VÍS velli.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 Fram
Sebastian Haugland skoraði eina mark leiksins eftir um 50 mínútna leik.
„Við skorum þetta geggjaða mark og verðum svolítið hræddir við að vinna og föllum til baka. En það var andi í þessu, menn að henda sér fyrir skot og fyrirgjafir, þetta var bara frábært. Nú er farið úr okkur að vera búnir með fyrsta heimaleik, við erum bara mættir. Það er helvíti flott að vera komnir með sex stig eftir þrjá leiki."
Var léttir að heyra lokaflautið?
„já, Aron var búinn að eiga eina flottustu vörslu sem ég hef séð og við vorum að þjást. Miðað við meðalhæðina í liðinu sem eftir var inn á hjá okkur, meðalaldurinn á öftustu 4-5, þá var þetta bara geggjað. Það var svakalegur andi í þessu og ég er stoltur af rosalega mörgum inn á vellinum."
Varslan sem Siggi talar um var eftir skot Fred á 83. mínútu. Fyrirliði Þórsarar þurfti að taka á honum stóra sínum til að koma í veg fyrir mark.
Affi fékk bombu í stríðsmanninn
Fréttamaður skaut inn í að ofan á það hafi Yann Emmanuel Affi verið á annarri löppinni.
„Hann fékk einhverja bombu í stríðsmanninn, svo var hann orðinn eitthvað aðeins (tæpur), hann átti stórkostlegan leik, Ási (Ásbjörn Líndal) við hliðina á honum var stórkostlegur líka. Þetta var orðið svolítið tæpt í lokin," segir Siggi.
„Þetta verður erfið regla held ég"
Í fyrri hálfleik lét hann í sér heyra þegar Kristófer Kristjánsson fékk ekki að fara inn á þegar þjálfarinn hélt að hann mætti fara inn á. Það er ný regla sem segir að ef leikmenn fá aðhlynningu þurfa þeir að vera í a.m.k. mínútu utan vallar áður en þeir fá að koma aftur inn á.
„Mínir menn fóru eitthvað að taka tímann og mögulega byrjuðu þeir á meðan leikurinn var ekki í gangi. Þetta er mjög sérstök regla og þessi mínúta... mér finnst dómarinn þurfa að leyfa mönnum að anda, tékka hvort það sé alveg pottþétt hvort þeir þurfi hjálp, þannig þetta sé ekki bara þannig að dómarinn kalli á sjúkraþjálfarann strax. Stundum þurfa menn bara tíu sekúndur og þá er þetta farið. Þetta verður erfið regla held ég."
Hann ræðir nánar um sigurmarkið og markaskorarann, ungu strákana í liðinu og stemninguna á vellinum í viðtalinu sem má sjá í spilaranum efst.
























