Það er algjör fótboltaveisla í gangi og spennandi helgi framundan. Slúðurpakki dagsins hefur líka upp á ýmislegt að bjóða enda styttist í sumargluggann.
Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao (26), portúgalska kantmanninum hjá AC Milan. Hann er verðmetinn a´um 60 milljónir punda. (Mail)
Manchester United fylgist með hollenska varnarmanninum Micky van de Ven (25) hjá Tottenham og kamerúnska miðjumanninum Carlos Baleba (22) hjá Brighton. (Athletic)
Manchester City íhugar að gera tilboð í argentínska miðjumanninn Enzo Fernandez (25) hjá Chelsea í sumar. (Athletic)
Aston Villa hefur áhuga á enska markverðinum James Trafford (23) hjá Manchester City og gæti hann komið í stað Emiliano Martínez (33) ef sá argentínski ákveður að færa sig um set. (Times)
Manchester City er í lykilstöðu til að kaupa enska miðjumanninn Elliot Anderson (23) þrátt fyrir áhuga félaga á borð við Manchester United og Arsenal. (Sky Sports)
Jadon Sancho (26), kantmaður Manchester United sem er á láni hjá Aston Villa, hefur lýst yfir áhuga á að snúa aftur til Borussia Dortmund í sumar. Þýska félagið er í viðræðum við United. (Sky Sport Þýskaland)
Umboðsmenn Fílabeinsstrendingsins Yan Diomande (19) hafa rætt við Liverpool og Paris St-Germain. Þýska félagið RB Leipzig vill halda kantmanninum í að minnsta kosti eitt tímabil í viðbót. (Bild)
Igor Julio (28), miðvörður Brighton, gæti snúið aftur til Brasilíu en Cruzeiro hefur áhuga á að fá hann. Julio var á láni hjá West Ham fyrri hluta tímabilsins. (ESPN)
Athletic Bilbao ætlar að ráða Edin Terzic, fyrrum stjóra Borussia Dortmund, til að taka við af Ernesto Valverde sem hættir í sumar. (Mundo Deportivo)
Úlfarnir, Bournemouth og Sunderland eru meðal félaga sem hafa áhuga á jamaíska sóknarmanninum Rumarn Burrell (25) hjá Queens Park Rangers. (Football Insider)
Brentford hefur mikinn áhuga á úkraínska sóknarmanninum Matviy Ponomarenko (20) hjá Dynamo Kiev. Brasilíski markaskorarinn Igor Thiago (24) hjá Brentford hefur verið orðaður við Chelsea og Tottenham. (Teamtalk)
Nottingham Forest mun reyna að fá miðjumanninn Arne Engels (22) frá Celtic í sumar. Skoska félagið hafnaði 25 milljóna punda tilboði frá Forest í febrúar. (Teamtalk)
Tottenham er í viðræðum við Sebastian Kehl um að koma í starf íþróttastjóra en þessi 46 ára Þjóðverji lét af störfum hjá Borussia Dortmund í síðasta mánuði. (Sun)


