Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Alveg sama hvort Mbappe líkar við Mourinho, Julia Roberts eða einhvern annan"
Mynd: EPA
Það truflar Alvaro Arbeloa ekki neitt að Kylian Mbappe hafi líkað við færslu þar sem Jose Mourinho var orðaður við Real Madrid.

Alvaro Arbeloa tók við að Xabi Alonso þegar hann var rekinn en hann hefur alls ekki staðist undir væntingum. Það stefnir í að liðið fari titlalaust í gegnum tímabilið en liðið er níu stigum á eftir Barcelona í titilbaráttunni í spænsku deildinni.

Greint hefur verið frá því að Florentino Perez, forseti Real Madrid, ætli að funda með Jose Mourinho um stjórastöðuna. Það vakti athygli að Mbappe líkaði við færslu þar sem Mourinho var orðaður við félagið og Arbeloa var spurður út í það.

„Mér er alveg sama hvort Mbappé líkar við Mourinho, Julia Roberts eða einhvern annan," sagði Arbeloa.
Slapp
banner
banner
banner