Fylkir og Afturelding byrja Lengjudeildina á heimavelli
Í kvöld hefjast ný tímabil í Bestu deild kvenna og Lengjudeild karla og ríkir mikil eftirvænting.
Íslandsmeistarar Breiðabliks taka á móti sterku liði Þróttar í Bestu deildinni á sama tíma og Víkingur R. spilar við Stjörnuna.
Til gamans má geta að Víkingur og Stjarnan áttust við í karlaflokki í gærkvöldi og lauk þeirri viðureign með naumum sigri heimamanna.
Í Lengjudeildinni eru það Fylkir og Afturelding sem eiga heimaleiki gegn Ægi og ÍR. Afturelding féll úr Bestu deildinni í fyrra.
Besta kvenna
19:15 Breiðablik-Þróttur R. (Kópavogsvöllur)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
Lengjudeild karla
19:15 Fylkir-Ægir (tekk VÖLLURINN)
19:15 Afturelding-ÍR (Malbikstöðin að Varmá)



