Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fim 23. apríl 2026 19:26
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Sevilla í vandræðum eftir tap í fallbaráttuslag
Mynd: EPA
Levante 2 - 0 Sevilla
1-0 Ivan Romero ('38)
2-0 Ivan Romero ('93)

Levante og Sevilla áttust við í mikilvægum fallbaráttuslag í spænska boltanum í dag.

Heimamenn í Levante voru sterkari aðilinn í nokkuð bragðdaufum slag en Iván Romero gerði herslumuninn.

Hann tók forystuna með glæsilegu marki á 38. mínútu eftir sofandahátt í vörn Sevilla í kjölfar stuttrar aukaspyrnu. Romero fékk sendingu yfir vörnina og leyfði boltanum að skoppa einu sinni áður en hann kláraði með frábæru viðstöðulausu skoti í nærhornið.

Sevilla reyndi að svara fyrir sig í seinni hálfleik en tókst ekki að skapa mikla hættu. Þess í stað fékk Levante bestu færin og innsiglaði Romero sigurinn í uppbótartíma, svo lokatölur urðu 2-0.

Sevilla er aðeins einu stigi frá fallsæti eftir þetta tap, tveimur stigum fyrir ofan Levante sem er núna búið að vinna þrjá af síðustu fjórum deildarleikjum sínum.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 32 27 1 4 85 30 +55 82
2 Real Madrid 32 23 4 5 67 30 +37 73
3 Villarreal 31 19 4 8 56 36 +20 61
4 Atletico Madrid 32 17 6 9 53 35 +18 57
5 Betis 32 12 13 7 48 40 +8 49
6 Celta 32 11 11 10 44 41 +3 44
7 Getafe 32 13 5 14 28 32 -4 44
8 Real Sociedad 32 11 9 12 49 49 0 42
9 Athletic 32 12 5 15 34 45 -11 41
10 Osasuna 32 10 9 13 37 39 -2 39
11 Espanyol 32 10 9 13 37 48 -11 39
12 Girona 32 9 11 12 35 48 -13 38
13 Vallecano 32 8 12 12 29 38 -9 36
14 Valencia 32 9 9 14 35 47 -12 36
15 Elche 32 8 11 13 42 49 -7 35
16 Mallorca 32 9 8 15 40 49 -9 35
17 Sevilla 32 9 7 16 39 53 -14 34
18 Alaves 32 8 9 15 36 48 -12 33
19 Levante 32 8 8 16 37 50 -13 32
20 Oviedo 31 6 9 16 24 48 -24 27
Slapp
banner
banner
banner