Valur fær FH í heimsókn í kvöld á Hlíðarenda, í þriðju umferð Bestu deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Byrjunarliðin hafa verið birt en þau má sjá hér fyrir neðan.
Lestu um leikinn: Valur 3 - 0 FH
Hermann Hreiðarsson þjálfari Vals gerir eina breytingu á liði sínu sem vann gegn ÍBV 2-1 í síðustu umferð. Bjarni Mark Antonsson sest á bekkinn en inn fyrir hann kemur Birkir Heimisson. Þá er nýjasti Valsarinn Samúel Kári Friðjónsson á bekknum og tilbúinn að spila sinn fyrsta leik í rauðu.
Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH gerir tvær breytingar á sínu liði frá því að þeir töpuðu 3-2 fyrir Stjörnunni í síðustu umferð. Birkir Valur Jónsson og Ísak Óli Ólafsson setjast á bekkinn, en fyrir þá koma Arngrímur Bjartur Guðmundsson og hinn 16 ára gamli Róbert Hugi Sævarsson byrjar sinn fyrsta leik fyrir FH í Bestu deildinni.
Byrjunarlið Valur:
18. Frederik Schram (m)
3. Hörður Ingi Gunnarsson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
14. Albin Skoglund
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
17. Lúkas Logi Heimisson
19. Dagur Orri Garðarsson
21. Jakob Franz Pálsson
22. Birkir Heimisson
23. Adam Ægir Pálsson
24. Myles A Veldman
Byrjunarlið FH:
1. Jökull Andrésson (m)
4. Tobias Carlsson
6. Grétar Snær Gunnarsson (f)
7. Kjartan Kári Halldórsson
8. Kári Kristjánsson
9. Kristján Flóki Finnbogason
14. Adolf Daði Birgisson
23. Tómas Orri Róbertsson
37. Baldur Kári Helgason
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
40. Róbert Hugi Sævarsson



