Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fös 24. apríl 2026 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
U16: HK með flesta fulltrúa í þróunarmóti UEFA
Mynd: KSÍ
U16 landslið Íslands mætir Finnlandi, Lettlandi og Írlandi á þróunarmóti UEFA sem verður leikið í Finnlandi dagana 1.-8. maí.

Lúðvík Gunnarsson landsliðsþjálfari er búinn að velja leikmannahópinn sem flýgur til Finnlands og eru Kópavogsliðin HK og Breiðablik með flesta fulltrúa.

Fjórir leikmenn úr röðum HK eru í lokahópnum og þrír leikmenn sem æfa með Breiðabliki.

FH, ÍA, Stjarnan og Þróttur R. eiga tvo fulltrúa hvert í hópnum og þá er einn leikmaður sem æfir með Hammarby í Svíþjóð.

Hópurinn:
Bjarki Örn Brynjarsson - HK
Emil Máni Breiðdal Kjartansson - HK
Marten Leon Jóhannsson - HK
Sölvi Hrafn Halldór Högnason - HK
Darri Kristmundsson - Breiðablik
Elmar Ágúst Halldórsson - Breiðablik
Óðinn Sturla Þórðarson - Breiðablik
Aron Gunnar Matus - FH
Róbert Hugi Sævarsson - FH
Aron Kristinn Zumbergs - ÍA
Styrmir Gíslason - ÍA
Bjarki Hrafn Garðarsson - Stjarnan
Markús Andri Daníelsson Martin - Stjarnan
Fjölnir Freysson - Þróttur R.
Leó Hrafn Elmarsson - Þróttur R.
Mikael Máni Þorfinnsson - Grindavík
Kristján Tómas Björnsson - Grótta
Emil Gautason - ÍBV
Sigurður Nói Jóhannsson - KA
Tristan Gauti Línberg Arnórsson - KR
Smári Signar Viðarsson - Þór
Emil Eldar Takao Árnason - Hammarby IF
Slapp
banner
banner
banner