A-landslið kvenna fellur niður um eitt sæti á nýjum heimslista FIFA og situr nú í 17. sæti.
Stelpurnar okkar unnu 1-0 gegn Úkraínu og töpuðu naumlega 0-1 fyrir Englandi síðan síðasti heimslisti var gefinn út.
18.04.2026 19:08
„Ein besta frammistaða sem ég hef séð í einhvern tíma“
Ísland skiptir um sæti við Kína á listanum eftir að hafa fengið -7,87 stig fyrir tap gegn Englandi og aðeins +1,54 stig fyrir sigur gegn Úkraínu. Á sama tíma fékk Kína mikið af stigum fyrir að vinna sigursælt landslið Norður-Kóreu sem situr í 11. sæti heimslistans.
Ísland er með 1795,94 stig, rúmum ellefu stigum meira heldur en Belgía sem situr í næsta sæti fyrir neðan á heimslistanum. Kína, Ástralía, Ítalía, Noregur og Danmörk sitja í næstu sætum fyrir ofan Ísland.
Næsta verkefni liðsins eru síðustu tveir leikirnir í undankeppni HM. Ísland mætir Úkraínu föstudaginn 5. júní í Póllandi og svo Spáni þriðjudaginn 9. júní á Laugardalsvelli.
Í kjölfarið verður dregið í fyrstu umferð umspilsins fyrir HM 2027 og verður hún leikin í október.
18.04.2026 19:59
„Drullusvekkjandi - áttum skilið meira en núll stig“






