Alisson orðaður við Juventus - Vilja framlengja lánssamninginn við Rashford
   fös 24. apríl 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn um helgina - Real og Barca á útivelli
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Real Madrid mætir til leiks í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild spænska boltans þegar stórveldið margverðlaunaða heimsækir Real Betis í kvöld.

Madrídingar eru í slæmri stöðu á miklu vonbrigðatímabili, níu stigum á eftir toppliði Barcelona þegar sex umferðir eru eftir af deildartímabilinu.

Leikur kvöldsins gegn Betis verður afar erfiður enda eru heimamenn í baráttu um sæti í Evrópudeildinni fyrir næsta haust.

Ríkjandi meistarar Barcelona eru á góðri leið með að verja titilinn og heimsækja þeir Getafe á morgun.

Alavés spilar við Mallorca í spennandi fallbaráttuslag áður en Valencia og Girona mætast, en þau eru einnig með í fallbaráttunni á gríðarlega spennandi lokakafla tímabilsins.

Atlético Madrid er búið að tapa fjórum leikjum í röð en siglir áfram lygnan sjó í meistaradeildarsæti. Lærlingar Diego Simeone spila við Athletic Bilbao í kvöld, en gestirnir frá Bilbao eru í baráttu um síðustu evrópusætin.

Orri Steinn Óskarsson og félagar í liði Real Sociedad eru einnig í evrópubaráttunni og heimsækja Rayo Vallecano í hádegisleiknum á sunnudag. Svo eru fallbaráttuslagir áður en Villarreal mætir Celta Vigo í áhugaverðum slag.

Að lokum mætast Espanyol og Levante í fallbaráttuslag á mánudagskvöldið.

Föstudagur:
19:00 Real Betis - Real Madrid

Laugardagur:
12:00 Alaves - Mallorca
14:15 Getafe - Barcelona
16:30 Valencia - Girona
19:00 Atletico Madrid - Athletic Bilbao

Sunnudagur:
12:00 Rayo Vallecano - Real Sociedad
14:15 Real Oviedo - Elche
16:30 Osasuna - Sevilla
19:00 Villarreal - Celta Vigo

Mánudagur:
19:00 Espanyol - Levante
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 32 27 1 4 85 30 +55 82
2 Real Madrid 32 23 4 5 67 30 +37 73
3 Villarreal 32 19 5 8 57 37 +20 62
4 Atletico Madrid 32 17 6 9 53 35 +18 57
5 Betis 32 12 13 7 48 40 +8 49
6 Celta 32 11 11 10 44 41 +3 44
7 Getafe 32 13 5 14 28 32 -4 44
8 Real Sociedad 32 11 9 12 49 49 0 42
9 Athletic 32 12 5 15 34 45 -11 41
10 Osasuna 32 10 9 13 37 39 -2 39
11 Vallecano 32 9 11 12 30 38 -8 38
12 Espanyol 32 10 8 14 37 49 -12 38
13 Girona 32 9 11 12 35 48 -13 38
14 Valencia 32 9 9 14 35 47 -12 36
15 Elche 32 8 11 13 42 49 -7 35
16 Mallorca 32 9 8 15 40 49 -9 35
17 Sevilla 32 9 7 16 39 53 -14 34
18 Alaves 32 8 9 15 36 48 -12 33
19 Levante 32 8 8 16 37 50 -13 32
20 Oviedo 32 6 10 16 25 49 -24 28
Slapp
banner
banner
banner