Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
Davíð Helgi: Búinn að halda þessu fagni leyndu
Haraldur Freyr: Of langur tími til þess að 'suffera'
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú er ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
Alli Jói: Hélt að vorbragur væri dautt hugtak í íslenskum fótbolta
Rændar vítaspyrnu - „Bara frábær markvarsla hjá útileikmanni Vals“
Brynjar Björn: Við fáum það í bakið, ekkert flóknara en það
„Þetta er náttúrulega gífurlega ungt lið“
„Hlýtur að vera ótrúlega erfitt að spá í þessa deild“
Bjarki Baldvins: Held að samkvæmt ströngustu reglum megum við ekki vera þjálfarar
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
   sun 26. apríl 2026 21:09
Brynjar Ingi Erluson
Enginn feluleikur hjá Hadda - „Ef þú er ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilarðu ekki í KA“
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, var vonsvikinn með frammistöðu sinna manna í 2-1 tapinu gegn Keflavík í kvöld og kallar eftir viðbrögðum, en hann sagðist ekki muna eftir slakara hugarfari síðan hann tók við.

Lestu um leikinn: KA 1 -  2 Keflavík

KA tapaði þriðja deildarleik sínum á tímabilinu og er liðið enn án sigurs eftir fjóra leiki.

Hann sagðist mjög vonsvikinn með frammistöðu manna og gagnrýndi hugarfarið sérstaklega.

„Já, mjög mikil. Keflavík vinnur bara leikinn sanngjarnt og hugarfarið í dag var því miður langt undir því sem við samþykkjum hér í KA. Ég er virkilega reiður yfir því hvernig menn mættu í leikinn,“ sagði Hallgrímur við Fótbolta.net og var síðan spurður hvort hugarfarið væri áhyggjuefni og svaraði hann því hreinskilið: „Já, það er áhyggjuefni.“

Hann sagði Keflavík hafa verið með grunninn, en það hafi KA ekki verið með í leiknum.

„Nei það er 'attitude'. Þú getur verið góður í fótbolta og æft uppspilið og taktík og allt það, en ef grunnurinn er ekki í lagi þá vinnur þú ekki fótboltaleiki. Keflavík var með það í lagi í dag og ég veit ekki hvort við héldum að við myndum rúlla yfir þá því þegar við fáum mark á okkur þá höfðum við fengið aðvaranir áður. Staðan er 1-1 og maður vill bara sjá betra 'attitude'. Við þurfum að átta okkur á því í KA og í seinni hálfleik er gjörsamleg þögn þegar staðan er 1-1 á heimavelli svo í lokin þegar við setjum Keflavík undir pressu síðustu tuttugu mínúturnar þá finnur maður smá orku og fá fólkið í stúkunni með, en þetta er ekki það sem fólkið í stúkunni vill sjá og við erum ekki ánægðir með frammistöðuna.“

Er eitthvað áhugaleysi?

„Ég veit ekki með áhugaleysi það er bara 'attitude' sem er ekki í lagi. Við erum seinir í alla pressu og vinnum ekki aðra boltanna og töpum sanngjarnt. Ég veit að við fáum dauðafæri og skjótum í stöng og svona, en þar erum við lentir undir og fínt að reyna að pressa á þá en þetta er eitthvað sem við þurfum að átta okkur á að er ekki í lagi.“

Hann taldi KA hafa verið heppið að komast yfir í leiknum og að hæfileikar, einir og sér, séu ekki nóg til þess að spila fyrir KA.

„Já, ég hugsaði það. Við áttum ekkert skilið að vera yfir í leiknum en þetta var flott mark. Varnarvinnan í liðinu er ekki nógu góð og við þurfum að átta okkur á því að fyrsta kemur hugarfarið og svo getum við talað um annað. Það þýðir ekki að tala um það að KA muni hrökkva í gang af því bara. Við erum neðstir í töflunni með eitt stig og áttum ekkert meira skilið í dag og menn þurfa bara að átta sig á því. Mér er alveg sama hvað þú ert góður en ef þú ert ekki tilbúinn að leggja þig fram þá spilaru ekki í KA.“

Það hefur verið umræða um hæga byrjun KA síðustu ár og er byrjunin í ár ein sú versta hjá félaginu á þessari öld.

„Já, örugglega. Mér er bara alveg sama um það. Þetta er fyrsti leikurinn sem ég kem hérna og er óánægður með hugarfar og frammistöðu leikmanna. Þetta er langt mót, en það verður alla vega ekki talað um að við séum komnir í gang eftir þennan leik, en við þurfum að setja hausinn á okkur og gera þetta eins og menn. Við þurfum að fá grunninn í lag þá erum við góðir, en um leið og við gerum það ekki þá vinnum við ekki fótboltaleiki,“ sagði Haddi ennfremur. Hann ræddi skiptingar í hálfleik, næsta leikinn gegn nágrönnunum í Þór og margt annað í viðtalinu hér fyrir ofan.
Slapp
banner
banner