Það fór eitt rautt spjald á loft þegar Fram tók á móti ÍBV í 5. umferð Bestu deildar karla á miðvikudag. Halldór Jón Sigurður Þórðarson fékk að líta það þegar skammt var til leiksloka.
Það var þó annað atvik sem mögulega verðskuldaði rautt spjald í leiknum. Guðmundur Magnússon virtist gefa Alex Frey Hilmarssyni olnbogaskot á mjög viðkvæman stað og þurfti Alex skiljanlega smá tíma til að jafna sig í kjölfarið.
Það var þó annað atvik sem mögulega verðskuldaði rautt spjald í leiknum. Guðmundur Magnússon virtist gefa Alex Frey Hilmarssyni olnbogaskot á mjög viðkvæman stað og þurfti Alex skiljanlega smá tíma til að jafna sig í kjölfarið.
Lestu um leikinn: Fram 3 - 1 ÍBV
„Hann fer með olnbogann upp í punginn á honum, það er bara þannig," sagði Kristinn Kjærnested þegar hann sá endursýningu af atvikinu. Hann lýsti leiknum á Stöð 2 Sport. Atvikið átti sér stað á 53. mínútu leiksins.
Fótbolti.net ræddi við Alex Frey í dag. Það sást í lok leiks að hann tók í höndina á Guðmundi og virtist ekki vera að erfa þetta mikið við hann.
„Ég var ekkert að velta mér mikið upp úr þessu. En svona eftir á að hyggja er þetta náttúrulega alveg galið samt. Ég var ekkert að spá of mikið í þessu."
Var eitthvað sem benti til þess að hann „ætti inni" eitthvað högg á þig? „Nei, er þetta ekki bara Gummi Magg eða? Er það ekki bara svoleiðis?" sagði Alex á léttu nótunum. „Ég var ekkert persónulega búinn að vera í einhverjum stimpingum við hann."
„Eftir leik var ég eiginlega bara í andlegu áfalli yfir þessari frammistöðu hjá okkur, maður var ekkert að spá mikið í þessu."
Guðmundur vildi ekki tjá sig um atvikið þegar Fótbolti.net heyrði í honum.
Er ekki með svarið við því
Frammistaða Eyjamanna var allt önnur einhvern veginn en í leikjunum tveimur á undan. Fann Alex komandi inn í leikinn að það væri eitthvað skrítið?
„Nei, ég held ekki. Það var helvítis högg að tapa þessu, djöfulli fúlt. En við bara áttum einhvern veginn 'off' dag í mörgu. Ég veit ekki hverju er um að kenna, er ekki með svarið við því."
„Mörkin sem við fengum á okkur... þriðja markið er eitthvað drullumark. Vítið sem við fengum á okkur var mjög kjánalegt, samt alltaf víti. Svo var staðsetningabras á okkur í aukaspyrnumarkinu. Ég held að heilt yfir varnarlega hafi þetta ekki verið ofboðslega slappt. Við vorum ekki góðir sóknarlega, það var eiginlega það sem fór með þetta," sagði Alex.
Næsti leikur ÍBV er á heimavelli gegn toppliði Víkings á mánudaginn. Alex lék með Víkingi 2016-18. „Víkingur heima, djöfull verður það gaman," sagði Alex að lokum.
Flott að þetta fengi jafn mikla umfjöllun og HJSÞ...Nauðsynlegt að vekja athygli á jafn miklum heigulskap og þessi leikmaður sýnir hér.
— Guðjón Orri Sigurjónsson (@gsigurjonsson25) May 4, 2023
Brot sem sæma fyrsta flokks ræfli
Hlökkum til að fá gunguna til eyja!@GummiBen pic.twitter.com/osOwBIIaBK
Athugasemdir


