Íslensku U17 og U19 landsliðin eiga bæði leiki við stórar og miklar fótboltaþjóðir klukkan 14:00 í dag.
U17 spilar við Ítalíu í undankeppni EM 2026 eftir stórt tap gegn Rúmeníu í fyrstu umferð.
Ítalir eru á heimavelli og mæta til leiks eftir nauman sigur gegn Portúgal í fyrstu umferð. Strákarnir okkar þurfa á sigri að halda til að eiga möguleika á toppsæti undanriðilsins.
Það verður bein útsending frá leiknum í boði ítalska fótboltasambandsins og verður hlekkur á leikinn auglýstur á miðlum KSÍ þegar hann berst.
U19 er að spila æfingamót í Portúgal og spilar við heimamenn í öðrum leik eftir naumt tap gegn Bandaríkjunum í fyrsta leik.
Portúgalir mæta til leiks fullir sjálfstrausts eftir góðan sigur á sterku landsliði Marokkó.
Leikurinn fer fram á æfingasvæði portúgalska fótboltasambandsins og hefst hann kl. 14:00 að íslenskum tíma. Bein útsending verður frá leiknum á síðu KSÍ í Sjónvarpi Símans.
25.03.2026 16:58
U17 lenti í brekku manni færri gegn Rúmeníu
Athugasemdir



