Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 17:05
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: Eva með fimmu í risasigri FH
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH 11 - 1 FHL
0-1 Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir ('16)
1-1 Eva Marín Sæþórsdóttir ('19)
2-1 Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('23)
3-1 Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('28)
4-1 Ingibjörg Magnúsdóttir ('31)
5-1 Eva Marín Sæþórsdóttir ('33)
6-1 Hildur Katrín Snorradóttir ('48)
7-1 Eva Marín Sæþórsdóttir ('51)
8-1 Hrönn Haraldsdóttir ('63)
9-1 Eva Marín Sæþórsdóttir ('64)
10-1 Hildur Katrín Snorradóttir ('73)
11-1 Eva Marín Sæþórsdóttir ('87)

FH tók á móti FHL í Skessunni í A-deild Lengjubikars kvenna og náðu gestirnir óvænt forystu eftir sextán mínútna leik. Brynhildur Brá Gunnlaugsdóttir var þar á ferðinni.

FH svaraði með því að skipta um gír og gjörsamlega valta yfir gestina frá Austurlandi.

Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir og Hildur Katrín Snorradóttir settu sitthvora tvennuna, en Eva Marín Sæþórsdóttir, fædd 2009, var atkvæðamest. Hún gerði sér lítið fyrir og skoraði fimm mörk í risasigri þar sem lokatölur urðu 11-1.

FH er með sex stig eftir fjórar umferðir og situr FHL eftir án stiga.
Athugasemdir
banner