Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
   lau 07. mars 2026 22:52
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu markið hjá Gísla Gottskálki
Mynd: Lech Poznan
Mynd: AEL Larissa Novibet
Mynd: Gwangju FC
Gísli Gottskálk Þórðarson var í byrjunarliði Lech Poznan sem heimsótti Widzew Lodz í efstu deild pólska boltans í dag.

Gísli skoraði fyrsta mark leiksins en tókst ekki að koma í veg fyrir endurkomu andstæðinganna. Þeir snéru leiknum við og var Gísla skipt af velli á 58. mínútu, þegar staðan var 2-1 sem reyndust lokatölurnar.

Þetta tap er mikill skellur fyrir Lech sem var búið að vinna fjóra deildarleiki í röð og hefði getað jafnað toppsætið á stigum með sigri. Widzew Lodz vippuðu sér úr fallsæti með þessum óvænta sigri.

Í C-deildinni á Ítalíu voru Óttar Magnús Karlsson og Kristófer Jónsson í byrjunarliðum Renate og Triestina sem gerðu markalaus jafntefli. Renate er í harðri umspilsbaráttu á meðan Triestina er fallið niður í D-deildina eftir að hafa fengið dæmd 23 mínusstig fyrir ýmis reglubrot.

Bjarki Steinn Bjarkason var ekki í hóp í enn einum sigri Feneyinga sem tróna á toppi Serie B og stefna upp í efstu deild.

Sigurður Bjartur Hallsson lék þá fyrstu 78 mínúturnar í fremstu víglínu hjá Mérida í C-deild spænska boltans. Mérida gerði markalaust jafntefli á heimavelli og er í harðri baráttu um sæti í umspili til að komast upp um deild.

Í efstu deild í Grikklandi tapaði Davíð Kristján Ólafsson naumlega gegn toppliði AEK. Davíð og félagar í AEL Larissa eru í fallbaráttu með 21 stig eftir 24 umferðir.

Í sænska bikarnum lék hinn tvítugi Róbert Frosti Þorkelsson seinni hálfleikinn í stórsigri GAIS gegn Norrköping og urðu lokatölur 5-1. Logi Hrafn Róbertsson var þá í byrjunarliði Varnamo sem tapaði fyrir Mjällby.

Hólmbert Aron Friðjónsson fékk svo að spila síðasta hálftímann í sigri Gwangju í efstu deild í Suður-Kóreu og er liðið komið með fjögur stig eftir tvær fyrstu umferðirnar á nýju tímabili.

Kolbeinn Birgir Finnsson var í byrjunarliði Vålerenga sem hafði betur í sjö marka æfingaleik gegn Strömsgodset og sigraði Ariana gegn Lunds á meðan Viðar Ari Jónsson var ónotaður varamaður í tapi Ham-Kam.

Kjartan Már Kjartansson var að lokum ekki í hóp í tapi Aberdeen í skoska boltanum, alveg eins og Jason Daði Svanþórsson sem hefur verið fjarverandi úr liði Grimsby Town undanfarna mánuði. Liðsfélagar hans gerðu jafntefli á heimavelli og eru í harðri baráttu um umspilssæti.

Widzew Lodz 2 - 1 Lech Poznan
0-1 Gísli Gottskálk Þórðarson ('28)
1-1 F. Alvarez ('34)
2-1 E. Kornvig ('52)

Renate 0 - 0 Lumezzane

Brescia 0 - 0 Triestina

Venezia 2 - 0 Reggiana

Merida 0 - 0 Talavera

AEK Aþena 1 - 0 AEL Larissa

GAIS 5 - 1 Norrköping

Mjallby 2 - 1 Varnamo

Gwangju 3 - 2 Incheon

Valerenga 4 - 3 Strömsgodset

Lunds 1 - 3 Ariana

Ham-Kam 0 - 2 Lilleström

Dunfermline 3 - 0 Aberdeen

Grimsby Town 1 - 1 Bromley



Athugasemdir
banner