Athletic Bilbao 0 - 1 Barcelona
0-1 Lamine Yamal ('68)
0-1 Lamine Yamal ('68)
Athletic Bilbao tók á móti Spánarmeisturum Barcelona í kvöldleik spænska boltans og úr varð jafn slagur.
Börsungar héldu mikið í boltann en náðu ekki að skapa sér opið færi gegn afar skipulögðu liði Athletic.
Heimamenn voru hættulegri aðilinn en þeim tókst ekki að skora. Ungstirnið Lamine Yamal skoraði aftur á móti eina mark leiksins með magnaðri afgreiðslu á 68. mínútu.
Yamal fékk alltof mikið pláss til að athafna sig og kláraði með ótrúlega öruggu skoti sem fór í samskeytin og inn, eftir góða stoðsendingu frá Pedri.
Athletic tókst ekki að jafna þrátt fyrir tilraunir svo niðurstaðan er 0-1 sigur Börsunga þrátt fyrir að lærlingar Hansi Flick hafi verið langt frá sínu besta.
Barca er með fjögurra stiga forystu á toppi La Liga þegar ellefu umferðir eru eftir. Athletic er fimm stigum frá evrópusæti.
Athugasemdir


