Í dag fóru fimm leikir fram í efstu deild franska boltans þar sem titilbaráttulið Lens kom sér aftur á sigurbraut með þægilegum sigri.
Florian Thauvin og Amadou Haidara voru meðal markaskorara í 3-0 sigri Lens, sem er einu stigi á eftir toppliði PSG í titilbaráttunni. Lens nýtti tækifærið til að minnka bilið eftir að PSG tapaði á heimavelli gegn Mónakó á föstudaginn.
Hákon Arnar Haraldsson var þá í byrjunarliði Lille sem gerði jafntefli við Lorient á eigin heimavelli. Lille náði forystunni snemma í síðari hálfleik og var Hákoni skipt af velli á 88. mínútu, en jöfnunarmark Lorient var skorað í uppbótartíma.
Hákon og félagar sitja í sjötta sæti eftir jafnteflið, fimm stigum frá meistaradeildarsæti þegar níu umferðir eru eftir af deildartímabilinu.
Corentin Tolisso rétt bjargaði þá stigi fyrir Lyon á heimavelli gegn Paris FC þegar hann skoraði jöfnunarmark leiksins úr vítaspyrnu á 96. mínútu. Lyon deilir þriðja sæti deildarinnar með Marseille.
Lyon er án sigurs síðustu fjóra leiki í röð í öllum keppnum eftir að hafa unnið þrettán leiki í röð þar á undan.
Brest vann á heimavelli og skiptu leikmenn Rennes mörkunum bróðurlega á milli sín í fjögurra marka sigri í Nice.
Lens 3 - 0 Metz
1-0 Saud Abdulhamid ('44)
2-0 Florian Thauvin ('46)
3-0 Amadou Haidara ('52)
Brest 2 - 0 Le Havre
1-0 Romain Del Castillo ('45+2)
2-0 Ludovic Ajorque ('71)
Lille 1 - 1 Lorient
1-0 Matias Fernandez-Pardo ('65)
1-1 Arthur Avom ('93)
Nice 0 - 4 Rennes
0-1 Esteban Lepaul ('13)
0-2 Sebastian Szymanski ('20)
0-2 Esteban Lepaul, misnotað víti ('36)
0-3 Ludovic Blas ('74)
0-4 Nordi Mukiele ('92)
Lyon 1 - 1 Paris FC
0-1 Marshall Munetsi ('63)
1-1 Corentin Tolisso ('96, víti)
Athugasemdir




