Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   sun 08. mars 2026 22:28
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Betis tapaði - Dramatík í Valencia
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fóru fjórir leikir fram í efstu deild spænska boltans í dag og í kvöld þar sem Real Betis tapaði á útivelli áður en Valencia vann afar dramatískan endurkomusigur í fallbaráttunni.

Betis heimsótti Getafe og byrjaði Antony, sem var búinn að skora tvö mörk og gefa eina stoðsendingu í fjórum deildarleikjum á undan, á bekknum þar sem hann þurfti á smá hvíld að halda.

Getafe komst í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik og tókst Antony og félögum ekki að minnka muninn í síðari hálfleik. Fyrrum úrvalsdeildarleikmennirnir Pablo Fornals og Diego Llorente komu einnig inn af bekknum en lokatölur urðu 2-0 þrátt fyrir yfirburði Betis í síðari hálfleik.

Betis er í góðri stöðu í evrópubaráttunni þrátt fyrir tapið og er Getafe núna fimm stigum frá evrópubaráttunni.

Það var rosaleg dramatík í Valencia þegar Alavés kíkti í heimsókn í spennandi fallbaráttuslag. Lucas Boyé skoraði eina markið í tíðindalitlum fyrri hálfleik úr vítaspyrnu snemma leiks en Javi Guerra jafnaði metin eftir orrahríð að marki Alavés í upphafi síðari hálfleiks.

Valencia var sterkara liðið í síðari hálfleik en Boyé endurheimti forystuna fyrir Alavés með skalla eftir hornspyrnu á 71. mínútu.

Valencia skipti um gír og lagði mikinn þunga í sóknarleikinn sinn á lokakaflanum. Það skilaði sér með jöfnunarmarki frá Eray Comert á 90. mínútu eftir nokkrar misheppnaðar marktilraunir í röð í kjölfar hornspyrnu.

Valencia sótti áfram í uppbótartímanum og fékk réttilega dæmda vítaspyrnu sem Hugo Duro skoraði úr á 99. mínútu. Tveir leikmenn Alavés voru á sama tíma sendir í sturtu með seinni gulu spjöldin sín, annar fyrir brotið innan vítateigs og hinn fyrir mótmæli.

Lokatölur urðu því 3-2 fyrir Valencia eftir ótrúlegan lokakafla. Þetta er þriðji sigur Valencia í síðustu fjórum deildarleikjum og er liðið núna komið sjö stigum fyrir ofan fallsvæðið. Alavés er tveimur stigum frá fallsvæðinu.

Sevilla tók á móti Rayo Vallecano í öðrum fallbaráttuslag og náði Akor Adams forystunni í fyrri hálfleik.

Sevilla var sterkara liðið en skapaði sér ekki mörg færi í lokuðum leik sem einkenndist af mikilli baráttu. Í upphafi síðari hálfleiks gerði Pacha jöfnunarmark fyrir gestina og tókst hvorugu liði að setja sigurmark, svo niðurstaðan varð 1-1 jafntefli.

Sevilla og Rayo eru bæði sex stigum frá fallsvæðinu eftir jafnteflið.

Að lokum hafði Villarreal betur gegn fallbaráttuliði Elche í leik tveggja hálfleika. Heimamenn voru sterkari í fyrri hálfleik og leiddu 2-0 en gestirnir léku af krafti í síðari hálfleik og náðu að minnka muninn, en lokatölur urðu 2-1. André Silva, fyrrum framherji AC Milan, RB Leipzig og portúgalska landsliðsins, skoraði mark Elche.

Tajon Buchanan og Santi Mourino skoruðu mörk Villarreal sem er svo gott sem búið að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu næsta haust, ellefu stigum fyrir ofan næsta lið þegar ellefu umferðir eru eftir.

Getafe 2 - 0 Betis
1-0 Kiko Femenia ('28 )
2-0 Martin Satriano ('45+1)

Valencia 3 - 2 Alaves
0-1 Lucas Boye ('3 , víti)
1-1 Javier Guerra ('47 )
1-2 Lucas Boye ('71 )
2-2 Eray Comert ('90 )
3-2 Hugo Duro ('99, víti)
Rautt spjald: Ander Guevara, Alaves ('97)
Rautt spjald: Jon Pacheco, Alaves ('97)

Sevilla 1 - 1 Rayo Vallecano
1-0 Akor Adams ('13 )
1-1 Alfonso Espino ('50 )

Villarreal 2 - 1 Elche
1-0 Tajon Buchanan ('31 )
2-0 Santiago Mourino ('41 )
2-1 Andre Silva ('83 )
Athugasemdir
banner