ÍA tapaði í dag 3-1 fyrir Keflavík á Elkem vellinum á Akranesi núna í kvöld. Keflavík komst yfir í fyrri hálfleik og bættu svo við tveimur mörkum í þeim seinni áður en Markús Páll skoraði sárarbótamark í seinni hálfleik.
Lestu um leikinn: ÍA 1 - 3 Keflavík
„Ég held að fyrri hálfleikurinn framan af hafi verið ágætur hjá okkur við vorum að reyna spila boltanum og skapa okkur tækifæri en það gekk ekki eins vel og við ætluðum að tengja í sóknarþriðjungi en hefðum þurft að skapa okkur fleiri færi síðan fáum við mark á okkur úr föstu leikatriði og þá breytist leikurinn og opnaðist aðeins og Keflvíkingar gengu á lagið."
Keflvíkingar leiddu 1-0 í hálfleik og mættu mun sterkari út í seinni hálfleik.
„Við fengum á okkur mark eftir fast leikatriði. Við þurftum að fara sækja aðeins framar og þá hentaði leikurinn Keflvíkingum þeir eru góðir í þessu. Við erum búnir að skoða þá vel. Þeir eru með flott lið og eru góðir í þessu sem þeir gera. Þegar þú lendir undir gegn þeim þá getur þetta verið erfitt. Í stöðunni 1-0 var ég alltaf vongóður að við myndum vinna leikinn en fáum svo á okkur 2 ódýr mörk sem gerði það mjög erfitt."
Byrjunin á tímabilinu hafa verið vonbrigði fyrir ÍA og hafa einungis unnið einn leik af sex á þessu tímabili.
„Þessir leikir hafa verið mjög mismunandi og ekki eitthvað eitt sem hægt er að horfa í. Þú getur tekið hvern leik fyrir sig og skoðað hvað þarf að bæta. Stigasöfnunin hefur ekki verið góð en nú tekur við Grindavík í bikarnum," segir Lárus Orri.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
























