„Þetta var frábær frammistaða í dag'' segir Katrín Ásbjörnsdóttir, leikmaður Breiðablik, eftir 2-0 sigur gegn Keflavík í 12. umferð Bestu deild kvenna í dag.
Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 0 Keflavík
„Við sýndum það að það þurfti mikla þolinmæði og vissum það að þær yrði þéttar og skipulegðar varnalega. Þær hafa sýnt það á móti Val og Þrótti að þær geta gefið þessum stóru liðum góða leiki,''
„Smá öðruvísi fyrir okkur að við höfum skorað snemma í síðustu leikjum, en það koma ekki í dag og við ræddum það bara í hálfleik að þurfa ennþá meira þolinmæði.''
Katrín skoraði tvö mörk í leiknum og spurt var henni um frammistöðu sína í dag.
„Bara ánægð með hana og bara liðið heilt yfir. Það er alltaf gott að skora, þannig ég er bara sátt með það.''
„Það er bara mjög góð stemning inn í klefa og þetta er bara flott liðsheild,''
Viðtalið í heild sinni er hægt að horfa á hér fyrir ofan.























