Xavi Hernández, sem er goðsögn hjá Barcelona, rifjaði upp dvöl sína sem þjálfari hjá félaginu.
Xavi stýrði Barca í tvö og hálft ár frá nóvember 2021 til maí 2024 og vann spænsku deildina tímabilið 2022-23.
Hann hefur verið orðaður við ýmis þjálfarastörf frá því að hann var rekinn frá Barcelona, meðal annars endurkomu til Barca.
„Kafla mínum sem þjálfari Barcelona er lokið í bili. Eins og málin standa núna þá er ég ekki að fara að snúa aftur í starfið," sagði Xavi, en talið er að hann vilji ekki snúa aftur í starfið svo lengi sem Joan Laporta er forseti félagsins.
Xavi talaði svo um Lionel Messi sem hann segir hafa verið búinn að samþykkja endurkomu til Barcelona eftir HM 2022, en Laporta kom í veg fyrir félagaskiptin.
„Leo Messi ætlaði að koma aftur til Barcelona eftir að Argentína vann HM. Aðilar komust að samkomulagi en Laporta stöðvaði félagaskiptin. Hann sagði við mig að ef Leo kæmi aftur til félagsins myndu aðrir leikmenn heimta launahækkanir og að félagið ætti ekki efni á því.
„Eina ástæðan fyrir því að Messi samdi ekki aftur við Barcelona er Laporta. Launaþak La Liga eða háar launakröfur Messi eru ekki ástæðurnar. Það er lygi sem Laporta dreifði."
Xavi fór víðan völl í viðtalinu og ræddi meðal annars Martín Zubimendi, miðjumann Arsenal og spænska landsliðsins sem lék með uppeldisfélaginu Real Sociedad áður en hann var keyptur til Englands. Xavi vildi fá hann til Barca, en stjórnendur keyptu Oriol Romeu í staðinn úr röðum Girona.
„Ég bað stjórnendur um að kaupa Martín Zubimendi en þeir sögðu nei. Það var fjárhagsleg ákvörðun, þeir keyptu ódýrari valkost í staðinn en við misstum (Sergio) Busquets. Ég skildi ekki hvernig var mögulegt að við gátum ekki fengið Zubimendi."
11.12.2025 15:30
Reisa 20 metra háa styttu af Messi
Athugasemdir



