Heimild: RÚV
Áhorfandi á leik KA og Keflavíkur í Bestu deildinni á Akureyri á sunnudaginn var sóttur upp í stúku af lögreglu og færður til skýrslutöku.
RÚV fjallar um málið og segir lögregluna á Norðurlandi eystra ekki gega upplýsingar um málið en segir það viðkvæmt.
RÚV fjallar um málið og segir lögregluna á Norðurlandi eystra ekki gega upplýsingar um málið en segir það viðkvæmt.
Um 600 áhorfendur voru á leiknum og í upptöku sjást lögreglumenn horfa yfir áhorfendaskarann og leita að sakborningi, áður en hann er svo sóttur og leiddur út.
Lögregla ítrekar að málið tengist hvorki íþróttafélalögunum né leikvanginum, heldur hafi lögregla fengið upplýsingar um að viðkomandi væri þar. Því hefði hann verið sóttur þangað en síðan sleppt að lokinni skýrslutöku.



