Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Valur á heimavelli var litla liðið"
Kvenaboltinn
Valur fagnar marki í leiknum.
Valur fagnar marki í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úr leiknum á Hlíðarenda á laugardag.
Úr leiknum á Hlíðarenda á laugardag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst Grindavík/Njarðvík bara betra liðið á vellinum," sagði Arnar Páll Garðarsson í Uppbótartímanum þegar rætt var um leik Vals og Grindavík/Njarðvíkur í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna.

Leikurinn endaði með 2-1 sigri Vals en það er óhætt að segja að gestirnir hafi verið talsvert sterkari í leiknum og voru þær yfir á öllum tölfræðisviðum nema því sem skiptir máli: Að skora mörk.

„Grindavík/Njarðvík er bara með betra lið en Valur. Mér fannst Gylfi (Tryggvason, þjálfari liðsins) koma flottur í viðtalið eftir leik, fókus á alla réttu hlutina. Ég held að leikmenn Grindavík/Njarðvíkur taki örugglega meira jákvætt en neikvætt úr þessum leik," sagði Arnar jafnframt en þetta var fyrsti leikur Grindavík/Njarðvíkur í Bestu deildinni.

„Ég var ánægður að Gylfi var í gallajakka, ég fagna því þegar aðalþjálfarar eru aðeins að brydda upp á hlutina, vera ekki bara í galla merktum félaginu," sagði Magnús Haukur Harðarson og tók undir það að gestirnir hefði verið talsvert betri.

Það er skrítið að hugsa til þess að fyrir þremur árum var Valur besta lið landsins á meðan Grindavík/Njarðvík hafði ekki verið stofnað í núverandi mynd.

„Það fyrsta sem ég fór að hugsa eftir leik var hvað það getur breyst mikið á 1-2 árum. Valur á heimavelli var litla liðið, var minna með boltann og báru virðingu fyrir Grindavík/Njarðvík sem var að koma upp um deild. Það segir hvar Valur er statt í ferlinu en það sem ég vil hrósa Val fyrir er meðalaldur upp á 20 ár og þær eru með uppalda leikmenn í byrjunarliðinu ásamt því að setja uppalda leikmenn inn á," sagði Arnar Páll.

Hægt er að hlusta á Uppbótartímann í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan og á öllum hlaðvarpsveitum.
Uppbótartíminn - Féllu á eigið sverð og umræðu svarað
Slapp
banner
banner
banner