Dregið var í 16-liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í höfuðstöðvum KSÍ í dag. 16-liða úrslit keppninnar verða leikin föstudaginn 15. maí og laugardaginn 16. maí.
Breiðablik er ríkjandi bikarmeistari, eftir að hafa unnið FH 3-2 í úrslitaleik í fyrra, og mun liðið mæta Þrótti í Laugardalnum.
Breiðablik er ríkjandi bikarmeistari, eftir að hafa unnið FH 3-2 í úrslitaleik í fyrra, og mun liðið mæta Þrótti í Laugardalnum.
16-liða úrslit
Valur - Grindavík/Njarðvík
Selfoss - FH
Tindastóll - ÍBV
Þór/KA - Stjarnan
Keflavík - Víkingur
Fram - ÍA
Þróttur - Breiðablik
Fylkir - FHL



