Þrír leikmenn ÍA fóru nýverið í ferð til Króatíu til að fá greiningu við meiðslum sem þeir voru að glíma við. Um er að ræða Erik Tobias Sandberg, Rúnar Már Sigurjónsson og Steinar Þorsteinsson.
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var spurður út í þetta í viðtali eftir 4-0 tap gegn Víkingi í gær.
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, var spurður út í þetta í viðtali eftir 4-0 tap gegn Víkingi í gær.
„Við erum með mjög góðan sjúkraþjálfara frá Króatíu. Þeir fóru með honum til Króatíu. Ástæðan fyrir því að þeir fóru þangað var til að fá greiningu sem allra fyrst. Tími skiptir gríðarlega miklu máli í þessu," sagði Lárus.
„Þeir fóru á sjúkrahús, voru myndaðir og hittu sérfræðinga. Við fengum greiningar á meiðslum þeirra mjög snöggt. Það hefur heldur betur borgað sig. Þú sérð að Erik er kominn aftur í hópinn hjá okkur og það er því að þakka að hann fór út og var rétt greindur. Hann hafði verið vitlaust greindur af þessum meiðslum sem hann var að ströggla með hingað til."
Steinar og Rúnar fara líka í þessa ferð, hvernig er staðan á þeim?
„Það eru enn einhverjar vikur í Rúnar. Með Steinar er það sama, það eru vikur í hann."
Er þetta áfellisdómur á heilbrigðiskerfið á Íslandi?
„Það er oft erfitt að fá tíma hjá sérfræðingum hérna. Ég held að þetta sé aðallega það að við erum mjög góðan sjúkraþjálfara frá Króatíu sem er mjög vel tengdur þar. Þeir fara þarna og á einum degi hitta þeir alla þá sérfræðinga sem þeir þurfa að hitta, eru myndaðir fram og til baka. Við ákváðum bara að láta vaða á þetta," sagði Lárus.



