Núna lokar félagaskiptaglugginn á Íslandi á morgun og eflaust eru mörg lið að skoða í kringum sig. Eitt þeirra hlýtur að vera FH sem hefur farið illa af stað í Bestu deildinni og er aðeins með eitt stig eftir fyrstu fjóra leikina.
Jóhannes Kristinn Bjarnason hefur til að mynda verið orðaður við FH-inga en hann gekk í raðir Víkinga fyrir tímabilið. Hann fékk sínar fyrstu fimm mínútur á tímabilinu í gær.
Jóhannes Kristinn Bjarnason hefur til að mynda verið orðaður við FH-inga en hann gekk í raðir Víkinga fyrir tímabilið. Hann fékk sínar fyrstu fimm mínútur á tímabilinu í gær.
„Það er erfitt að nefna leikmenn sem eru samningsbundnir öðrum liðum, en við vitum alveg að það eru leikmenn í íslenskum liðum sem eru ósáttir," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari FH, í viðtali við Fótbolta.net í gær.
„Við erum að skoða hvort að réttu týpurnar séu á lausu og vilja koma til okkar."
Auðvitað verður hann drullupirraður út í mig
Það var athyglisverð skipting á liði FH í gær þar sem Kristján Snær Frostason fór af velli eftir að hafa komið inn á í hálfleik. Jói Kalli ræddi við Vísi um skiptinguna.
„Mér fannst Kristján koma inn með ákefð og grimmd en ég þurfti líka að gera breytingu í fyrri hálfleik og svissa bakvörðum. Amin Cosic var að gera okkur lífið leitt. Við setjum Kristján inn á í seinni til að stoppa hann. Hann fékk gult snemma og það hefði verið hræðilegt fyrir okkur að missa hann af velli," sagði Jói Kalli.
„Við ákváðum bara að gera þessa breytingu. Það er erfitt að koma inn á og vera tekinn út af. Það hafði ekkert með frammistöðu hans að gera."
Þetta var erfið ákvörðun að taka. „Auðvitað verður hann drullu pirraður út í mig. Það er ekki nokkur spurning. Svona eru bara þessi erfiðu móment í fótbolta og ég veit að Kristján verður mættur á æfingu á morgun og klár í slaginn en 100% pirraður og ég skil hann vel," sagði Jói Kalli.


