Þrátt fyrir titlaleysi síðustu ár hefur gengi Arsenal tekið miklum framförum frá árunum á undan og eru stuðningsmenn liðsins farnir að láta sig dreyma um stóra titla.
Þetta á líka við um Arsenal aðdáendur á Íslandi og fékk Birkir Hlynsson, Eyjamaður og rakari, þá hugmynd að byrja með Arsenal hlaðvarp fyrir nústandandi tímabil.
„Arsenal samfélagið er stórt hérna í Eyjum og höfum við nokkrir verið að reyna að byggja upp stemningu fyrir leikjunum og fá menn til að hittast. Mér datt því í hug að taka þetta lengra og fá Daníel (Daníel Geir Moritz) með mér í að gera Arsenal hlaðvarp. Hann sló strax til og höfum við tekið upp 15 þætti það sem af er tímabili," segir Birkir.
Daníel Geir Moritz stofnaði Innkastið á sínum tíma hér á Fotbolti.net, ásamt Elvari Geir, en Birkir hefur ekki verið í hlaðvarpi áður.
Arsenal-Eyjan
„Fyrstu þættirnir báru þess aðeins merki að við höfðum ekki gert þetta saman áður en gengu þó bara vel. Það er inn á milli smá einkahúmor í gangi, þar sem þetta er fyrst og síðast hugsað fyrir þá sem eru í Arsenal samfélaginu í Eyjum. Menn hafa líka komið í þáttinn og sagt ferðasögur og svona. Við fórum svo að verða þess varir að fleiri voru farnir að hlusta og hafa gaman af, sem er hið besta mál."
Þátturinn hjá þeim félögum ber heitið Arsenal-Eyjan, sem er tilvísun í búsetu þeirra félaga.
„Okkur fannst þetta svo hallærisleg hugmynd að nafni að okkur byrjaði að finnast hún góð. Við Viktor félagi minn erum með rakarastofu hérna í Eyjum og hingað koma menn að ræða allan fjárann. Þar er Arsenal oft fyrirferðarmikið, skipulagðar ferðir út og farið yfir leikina. Ég hugsaði því; Af hverju ekki að koma þessu bulli í hlaðvarp?"/ segir Birkir.
Til gamans má geta að Birkir er sonur Hlyns Stefánssonar, fyrrum fyrirliða ÍBV, og var hann aðstoðarþjálfari kvennaliðs ÍBV fyrir nokkrum árum. „Ef Arsenal fólk er í Eyjum á leikdegi má gjarnan heyra í mér eða Daníel og koma í hitting yfir leiknum."
Arsenal-Eyjan kemur út óreglulega, eða bara þegar þeir félagar eru í stuði. Hægt er að hlusta með því að smella hér og á Spotify undir Arsenal Eyjan.



