Keflavík hefur samkvæmt öruggum heimildum Fótbolta.net borið víurnar í Magnús Inga Þórðarson leikmann Fram. Magnús Ingi óskaði eftir því á dögunum að fá að yfirgefa félagið en tækifæri hans hafa verið af skornum skammti í mótinu til þessa.
Magnús Ingi sem fæddur er árið 1999 kom við sögu í tólf leikjum í Bestu deildini í fyrra en tókst ekki að skora í þeim. Á yfirstandandi tímabili kom hann inn á sem varamaður í liði Fram í fyrstu tveimur umferðum mótsins en hefur ekki verið í hóp í síðustu leikjum liðsins.
Aðspurður um stöðu Magnúsar eftir 5-1 sigur Fram á ÍBV í gær sagði Rúnar Kristinsson þjálfari liðsins.
„Við höfum fengið fyrirspurnir um hann og aðra leikmenn. Við sjáum til hvað gerist á næstu dögum og aldrei að vita hvort það verði einhver hreyfing á hópnum.''



