Rasmus Höjlund verður mögulega alfarið leikmaður Napoli næsta mánudag.
Höjlund var lánaður frá Manchester United til Napoli síðastliðið sumar og hefur átt ágætis tímabil á Ítalíu þar sem hann hefur skorað 14 mörk í 40 keppnisleikjum.
Höjlund var lánaður frá Manchester United til Napoli síðastliðið sumar og hefur átt ágætis tímabil á Ítalíu þar sem hann hefur skorað 14 mörk í 40 keppnisleikjum.
Í lánssamningnum er ákvæði um að Napoli þurfi að kaupa Höjlund ef félagið kemst í Meistaradeildina. Samkomulagið á milli félaganna felur í sér að Napoli borgi 44 milljónir evra fyrir danska framherjann.
Ef Napoli vinnur Como næsta laugardagskvöld og Roma tapar stigum gegn Alberti Guðmundssyni og félögum í Fiorentina á mánudag, þá er Napoli komið í Meistaradeildina fyrir næsta tímabil.
Höjlund er búinn að gera samkomulag við Napoli um samning til 2030.




