Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 16:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Það sem liðin í Bestu kvenna ættu að skoða fyrir gluggalok
Kvenaboltinn
Ída Marín Hermannsdóttir.
Ída Marín Hermannsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir.
Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Katie Cousins.
Katie Cousins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Maya Hansen var frábær með FH í fyrra.
Maya Hansen var frábær með FH í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur náði í sigur í fyrstu umferðinni.
Víkingur náði í sigur í fyrstu umferðinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Félagaskiptaglugginn í Bestu deild karla og kvenna lokar á miðnætti á morgun. Í Uppbótartímanum, hlaðvarpi um kvennaboltann, fóru Arnar Páll Garðarsson og Magnús Haukur Harðarson yfir það sem liðin í Bestu deild kvenna ættu að skoða fyrir gluggalok. Hér fyrir neðan má sjá afraksturinn en einnig er hægt að hlusta á umræðuna í spilaranum fyrir neðan eða á hlaðvarpsveitum.

Breiðablik
Eftir að Helga Rut Einarsdóttir var seld kom strax upp sú hugsun að styrkja þyrfti varnarleikinn og auka breiddina. Á sama tíma er spurning hversu skynsamlegt er að bæta við leikmanni sem kæmi fyrst og fremst inn á bekkinn. Til að gera þetta lið enn meira spennandi væri áhugavert að sjá Ídu Marín Hermannsdóttur í þessum hópi. Breiðablik er með frábæra miðju en miðað við leikstíl liðsins gæti hún gefið því enn meiri vídd.

Valur
Miðað við hópinn og leikinn gegn Grindavík/Njarðvík virðist liðið kalla á sóknarmann sem getur búið til eitthvað upp úr engu. Leikmann sem þarf ekki stöðugt að vera á boltanum en getur brotið upp leikinn og komið með eitthvað óvænt að borðinu. Valur reyndi að fá Úlfu Dís frá Stjörnunni á síðasta ári og leikmaður af þeirri týpu myndi passa vel inn í þetta lið.

Víkingur R.
Liðið gæti nýtt sér leikmann í stöðu vængbakvarðar sem hefur skýra sóknarhugsun. Ekki endilega ákveðið nafn, en mögulega er þörf á leikmanni í þá stöðu sem getur gefið liðinu enn meiri kraft fram á við.

ÍBV
Liðið virðist kalla á miðjumann sem getur tengt saman spil liðsins. Leikmaður sem er svipaður að stíl og Katelyn Duong, sem er í Breiðabliki, gæti fallið vel inn í það hlutverk, þar sem áherslan væri frekar á að láta liðið tikka en að skila tölfræði í mörkum og stoðsendingum.

FH
FH gæti nýtt sér klassískan framherja. Níu sem getur spilað með bakið í markið og sett leikinn í gang fyrir aðra. Slík viðbót myndi gefa sóknarleik liðsins nýja vídd. Eins og Maya Hansen var fyrir liðið í fyrra. Kannski geta þær reynt við Ágústu (Maríu Valtýsdóttur) eða Sonju (Björg Sigurðardóttur) í Val. Þær byrjuðu báðar á bekknum í fyrstu umferð. Henda litlu tilboði inn til að athuga stemninguna.

Þór/KA
Ættu að heyra í Val og taka miðjumann þar sem heitir Glódís María Gunnarsdóttir. Hún getur búið til hluti, skapandi leikmaður sem er góð á boltann. Hún getur gefið þeim enn meiri fótbolta inn á miðsvæðinu.

Fram
Fram virðist hafa þörf fyrir meiri hraða í fremstu línu. Kantmaður sem getur opnað leikinn og gefið liðinu breidd myndi henta vel. Liðið er þegar með hraða leikmenn en mögulega mætti nýta þá enn betur eða bæta við annarri slíkri týpu. FH mögulega með leikmann fyrir þær þar sem Fram gæti notað leikmann eins og Hafrúnu Birnu Helgadóttur eða Hildi Katrínu Snorradóttur.

Grindavík/Njarðvík
Leikmann sem getur klárað færin eða akkeri inn á miðjuna eins og Katelyn Duong. Þeim vantar leikmann sem getur bundið saman vörn og miðjuna svo þær fái ekki þessi upphlaup á sig eins og mark númer tvö hjá Val í fyrsta leik. Mikaela Nótt í Breiðabliki?

Stjarnan
Vantar leiðtoga inn á völlinn. Inn á miðsvæðinu eru þær svolítið þungar á boltann og þeim vantar frískan miðjumann. Reyna að finna leikmann sem væri hraðari á boltann og fljótari að hugsa, Katie Cousins væri góður leikmaður fyrir Stjörnuna eins og önnur lið. Vantar öðruvísi týpu af miðjumanni. Ætlarðu að láta Katie Cousins labba í Þrótt?

Þróttur R.
Út frá leiknum gegn Breiðabliki þá var þetta svolítið eins og þegar Þór/KA var að leita að Söndru Maríu. Ef þær ætla ekki að fara úr þeim pælingum þá vantar leikmann til að geta barist um þessa bolta. Fá leikmann sem getur verið fókus punkturinn í því, ef ekki þá vantar þeim miðjumann eins og Katie Cousins. Einhvern sem getur fengið boltann inn á miðjunni, haldið í boltann og leyft þeim að komast aðeins ofar.
Uppbótartíminn - Féllu á eigið sverð og umræðu svarað
Slapp
banner
banner
banner