Stuðningsmenn Manchester United vilja ekki missa brasilíska miðjumanninn Casemiro frá félaginu í sumar og kölluðu eftir því að hann tæki eitt ár til viðbótar.
Casemiro hefur verið frábær síðan Michael Carrick tók við liðinu, en hann hefur þegar gefið það út að þetta verði hans síðasta tímabil með United.
Samningur hans rennur út í sumar og gæti farið svo að hann fari til Bandaríkjanna eða Sádi-Arabíu.
United-menn vilja alls ekki missa Casemiro sem spilar stóra rullu í liðinu og sungu þeir til hans í 2-1 sigrinum á Brentford á Old Trafford í kvöld.
„Eitt ár í viðbót, eitt ár í viðbót Casemiro,“ sungu stuðningsmenn í kvöld.
Man Utd er einum sigri frá því að tryggja Meistaradeildarsætið og myndi það eflaust gera helling fyrir liðið að halda honum eitt ár í viðbót sérstaklega þar sem leikjum liðsins mun fjölga verulega á næstu leiktíð.
???????? Man United fans: “One more year, one more year, Casemiro…”. pic.twitter.com/0wx2j5XFpP
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) April 27, 2026



