Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 28. apríl 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona opnar viðræður við Atlético
Mynd: EPA
Spánarmeistarar Barcelona hafa opnað viðræður við Atlético Madríd um argentínska sóknarmanninn Julian Alvarez.

Argentínumaðurinn hefur verið sterklega orðaður við Barcelona í dágóðan tíma og er það talinn lang líklegasti áfangastaður kappans í sumar.

ESPN segir frá því að Barcelona hafi nú sett sig í samband við Atlético til að sjá hvar landið liggur.

Verðmiðinn gæti verið vandamál fyrir Börsunga, en aðeins tvö ár eru liðin frá því hann var keyptur til Atlético frá Manchester City fyrir 95 milljónir evra og er hann þá með 500 milljóna evra riftunarákvæði í samningnum.

Samkvæmt erlendu miðlunum vill Atlético fá um það bil 120 milljónir evra fyrir Alvarez, sömu upphæð og Barcelona greiddi fyrir Antoine Griezmann árið 2019.

Robert Lewandowski mun líklega yfirgefa Barcelona þegar samningur hans rennur út í sumar og mun félagið þurfa nýjan sóknarmann í stað hans.

Á dögunum var sagt frá því að Alvarez væri í leit að húsnæði í Barcelona, en umboðsmannateymi hans hefur vísað þeim fréttum til föðurhúsanna.
Slapp
banner
banner
banner
banner