Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 18:11
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið PSG og Bayern: Davies og Musiala byrja
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Ríkjandi Evrópumeistarar Paris Saint-Germain taka á móti Þýskalandsmeisturum FC Bayern í risaslag í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Byrjunarliðin hafa verið staðfest og ríkir gríðarleg eftirvænting fyrir þennan fyrri leik liðanna. Seinni leikurinn fer fram í München í næstu viku.

Það er lítið sem kemur á óvart í byrjunarliðum kvöldsins þar sem Luis Enrique þjálfari PSG teflir fram nákvæmlega sama liði og sló Englandsmeistara Liverpool úr leik á Anfield í síðustu umferð.

Vincent Kompany þjálfari Bayern gerir tvær breytingar á liðinu sem sló Real Madrid úr leik í 8-liða úrslitum. Alphonso Davies og Jamal Musiala eru búnir að ná fullum bata eftir meiðsli og byrja í kvöld, en þeir komu báðir inn af bekknum í seinni leiknum gegn Real.

Davies og Musiala taka byrjunarliðssætin af Konrad Laimer og Serge Gnabry. Laimer er á bekknum en Gnabry er meiddur næstu mánuðina og missir af HM í sumar.

PSG: Safonov; Hakimi, Marquinhos, Pacho, Mendes; Zaire-Emery, Vitinha, Neves; Doue, Dembele, Kvarataskhelia.
Varamenn: Chevalier, Marin, Beraldo, Zabarnyi, Ruiz, Ramos, Lee, Hernandez, Mayulu, Fernandez, Barcola, Mbaye.

FC Bayern: Neuer; Stanisic, Upamecano, Tah, Davies; Kimmich, Pavlovic, Olise, Musiala, Diaz; Kane.
Varamenn: Ulreich, Urbig, Kim, Goretzka, Jackson, Ito, Laimer, Ofli, Pavic.
Slapp
banner
banner