Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 15:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Útilokar ekki að Stjarnan sæki leikmann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Annað kvöld lokar fyrir félagaskipti í Bestu deildina og eftir það geta liðin ekki fengið utanaðkomandi styrkingu fyrr en í sumarglugganum. Þau geta hins vegar áfram losað leikmenn í neðri deildir í viku til viðbótar.

Eftir að Samúel Kári Friðjónsson var seldur frá Stjörnunni útilokaði Jökull Elísabetarson ekki að Stjarnan myndi fá inn leikmann. Jökull er þjálfari Stjörnunnar og er líka ljóst að Alpha Conteh fer á láni frá félagnu til Keflavíkur.

Eftir leikinn gegn Val í gær var Jökull spurður út í mögulega styrkingu á markaðnum.

„Það gæti alveg verið, það yrði að vera rökrétt fyrir liðið, hópinn og þróun liðsins. Langtíma dæmi. En það er helvíti ólíklegt. Ég er mjög ánægður með hópinn, menn eru að koma til baka úr meiðslum," segir Jökull.

Varnarmaðurinn Gustav Kjeldsen var ekki með í gær en Jökull vonast til að Gustav verði klár gegn ÍA næsta sunnudag. Miðjumaðurinn Alex Þór Hauksson hefur þá ekkert spilað til þessa á leiktíðinni.
Innkastið - Gulir en alls ekki glaðir
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 4 4 0 0 18 - 8 +10 12
2.    Víkingur R. 4 3 1 0 10 - 3 +7 10
3.    Valur 4 3 0 1 10 - 5 +5 9
4.    Breiðablik 4 2 2 0 6 - 1 +5 8
5.    Fram 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
6.    Stjarnan 4 2 0 2 10 - 11 -1 6
7.    Þór 4 2 0 2 5 - 10 -5 6
8.    Keflavík 4 1 1 2 5 - 7 -2 4
9.    ÍA 4 0 2 2 4 - 9 -5 2
10.    KA 4 0 1 3 4 - 8 -4 1
11.    FH 4 0 1 3 5 - 11 -6 1
12.    ÍBV 4 0 1 3 5 - 14 -9 1
Slapp
banner
banner
banner