Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 10:10
Elvar Geir Magnússon
Aron Þrándar enn ekki komið við sögu - „Ég átti samtal við hann“
Aron Elís Þrándarson hefur enn ekki komið við sögu í Bestu deildinni.
Aron Elís Þrándarson hefur enn ekki komið við sögu í Bestu deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveinn Gísli er á meiðslalistanum.
Sveinn Gísli er á meiðslalistanum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Aron Elís Þrándarson í Víkingi var utan hóps í fyrstu leikjum Bestu deildarinnar og var svo ónotaður varamaður í 4-0 sigrinum gegn ÍA í gær.

Þessi 31 árs leikmaður missti af nánast öllu síðasta tímabili eftir að hafa slitið krossband. Það er mikil samkeppni um sæti í liði Víkings og Aron, sem er fyrrum landsliðs- og atvinnumaður, enn ekki fengið tækifæri.

„Það er í lagi með hann, hann hefði getað komið inn á. En breiddin er stór. Ég átti samtal við hann þar sem við ræddum þessa hluti. Það er eins með alla sem eru ekki að spila, þeir verða að vera tilbúnir, leggja sig fram á æfingum og bíða eftir sínum tækifærum. Og tækifærið mun koma fyrir hann," segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings um stöðu Arons.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 4 -  0 ÍA

Sveinn Gísli frá næstu vikur
Breiddin hjá Víkingum er farin að nýtast vel. Það hafa komið upp meiðsli í varnarlínunni og var Sveinn Gísli Þorkelsson ekki með í gær.

Sveinn Gísli varð fyrir því óláni að togna á æfingu svo það verða nokkrar vikur sem hann verður í burtu. Oliver Ekroth er að glíma við támeiðsli og það er gott að við séum með fjóra hafsenta. Styrkur hópsins er að sýna sig,

Róbert Orri Þorkelsson og Gunnar Vatnhamar stóðu vaktina í hjarta varnarinnar hjá Víkingum í gær. Víkingur er með tíu stig í öðru sæti Bestu deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði KR.
Sölvi Geir: Hann er búinn að sokka alla sem voru að gagnrýna hann
Slapp
banner
banner