Alonso og Silva á blaði Chelsea - Wissa til sölu - Delap vill vera áfram
   þri 28. apríl 2026 10:43
Elvar Geir Magnússon
Stóð í stórræðum á Alþingi áður en hann dæmdi KR - FH
Arnar og hans teymi á Meistaravöllum í gær.
Arnar og hans teymi á Meistaravöllum í gær.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var annasamur dagur hjá fótboltadómaranum Arnari Þór Stefánssyni í gær en hann dæmdi leik KR og FH í Bestu deildinni.

Fyrr um daginn stóð hann í stórræðum á Alþingi þar sem hann mætti á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.

Lestu um leikinn: KR 4 -  2 FH

Arnar starfar sem hæstaréttarlögmaður og á vb.is er fjallað um að hann telji spurninguna sem bera á upp í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu vera gallaða.

Arnar hefur dæmt í efstu deild í boltanum undanfarin ár og meðal annars fengið það verkefni að dæma bikarúrslit kvenna.

Alexander Tonini, fréttamaður Fótbolta.net, gaf Arnari fimm í einkunn fyrir dómgæsluna í leiknum í gær; sem KR vann 4-2.

„Þetta var erfiður leikur að dæma sökum miklum hraða, blautu gervigrasi og roki. Og alveg hægt að benda á nokkra dóma í leiknum sem hefði líklegast átt að dæma með öðrum hætti en að því sögðu þá hef ég séð mun verri dómgæslu," skrifaði Alexander í skýrslu um leikinn.
Slapp
banner
banner