Enski varnarmaðurinn John Stones segir að hann hafi upplifað alla sína drauma hjá Manchester City. Hann hefur staðfest að hann muni yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út í sumar.
Þessi 31 árs gamli varnarmaður gekk til liðs við Man City frá Everton árið 2016 frá Everton en hann hefur unnið deildina sex sinnum, Meistaradeildina einu sinni, enska bikarinn tvisvar og deildabikarinn þrisvar.

„Þetta hefur verið mitt heimili síðustu tíu ár og verður mitt heimili út ævina. Þetta hefur verið rússíbanareið að mörgu leyti. Ég kom hingað sem krakki og fer sem maður, hef orðið faðir, eiginmaður og fullmótaður leikmaður," skrifar Stones á samfélagsmiðlum.
„Ég hef upplifað alla drauma og lyft þeim bikurum sem ég kom hingað til að vinna."