Tottenham hefur áhuga á Rashford - Gordon á förum frá Newcastle - Arsenal fylgist með Osimhen
   þri 28. apríl 2026 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Guardiola: Hann er að verða einn af þeim bestu
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Pep Guardiola þjálfari Manchester City hrósaði Portúgalanum Matheus Nunes í hástert eftir sjötta sigur liðsins í röð í öllum keppnum um nýliðna helgi.

Man City sló Southampton úr leik í undanúrslitum enska bikarsins og á góða möguleika á að vinna bæði úrvalsdeildina og FA bikarinn í ár.

Nunes hefur verið gríðarlega mikilvægur á tímabilinu en hann var upprunalega fenginn til City sem miðjumaður sumarið 2023. Hann átti afar erfitt með að ryðja sér leið inn í byrjunarliðið en hann var þolinmóður og fann Guardiola nýja stöðu á vellinum fyrir Portúgalann, í hægri bakverði.

„Fyrir þónokkru síðan sáum við svolítið á æfingu sem kveikti á ákveðinni hugmynd sem hefur skilað sér í bættum árangri innan vallar, þegar við breyttum stöðunni hans Matheus Nunes. Þetta er leikmaður sem getur hlaupið allan liðlangan daginn en hvernig heilinn hans virkar er sérstakt. Það er mjög erfitt að finna fótboltagáfur eins og hann býr yfir og núna er hann búinn að mynda ótrúlegt samstarf með Rodri á vellinum," sagði Pep.

„Hann er með sama kraft og Kyle (Walker) en sér leikinn eins og miðjumaður útaf því að hann er, jú, hreinræktaður miðjumaður. Svo þegar komið er á síðasta vallarþriðjunginn þá er hann í hæsta gæðaflokki þegar kemur að því að finna fremsta mann. Við erum ótrúlega ánægðir með hann.

„Í byrjun höfðum við efasemdir um getuna hans til að verjast einn gegn einum og að halda réttu svæði á fjarstönginni þegar fyrirgjafir komu inn frá hinum vængnum, en hann er mikill keppnismaður og var fljótur að sýna framfarir. Hann elskar að verjast og er með frábært hugarfar, hann er fullkominn leikmaður fyrir okkur.

„Okkur vantaði meiri hlaupagetu í uppbyggingu sókna og nýjar leiðir til að sækja upp vænginn og Matheus gefur okkur það. Hann skapar stór vandamál fyrir andstæðingana útaf því að það er svo erfitt að verjast honum. Ef þeir elta hann inn völlinn þá skapast pláss á kantinum fyrir liðsfélagana en ef andstæðingarnir elta hann ekki þá refsar hann þeim á miðsvæðinu."


Nunes er 27 ára gamall og með rétt rúm tvö ár eftir af samningi sínum við City.

„Matheus er fullkomið dæmi um leikmann sem við viljum hafa hjá þessu félagi. Ef þú æfir alltaf vel og ert tilbúinn þá mun tækifærið koma, sama hversu lengi þú ert búinn að vera án þess að spila. Mér er sama hvað þú heitir, eina sem skiptir máli er frammistaðan.

„Hann er að verða einn af bestu hægri bakvörðum í heimi."

Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 34 17 10 7 60 46 +14 61
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 34 13 9 12 49 46 +3 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner