ÍR var aðeins rétt rúmlega 20% með boltann þegar þeir skoruðu sjö mörk gegn Aftureldingu í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar síðastliðið föstudagskvöld.
Þetta var ótrúlegur fótboltaleikur og kannski enn ótrúlegri þegar tölfræðin er skoðuð.
Þetta var ótrúlegur fótboltaleikur og kannski enn ótrúlegri þegar tölfræðin er skoðuð.
ÍR var nefnilega aðeins með boltann 20,5 prósent í leiknum á meðan ekkert lið í Lengjudeildinni var meira með boltann í fyrstu umferðinni en Afturelding.
Það verður að gefa ÍR-ingum það að þeir voru gríðarlega klínískir og nýttu sína sénsa vel.
„Ég hef séð marga leiki í gegnum tíðina og þessi er svona einn af þeim ótrúlegri," sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, við Fótbolta.net. „Þetta var örugglega skemmtilegt fyrir áhorfendur að horfa á þetta, mikið af mörkum og annað. En ég er auðvitað mjög svekktur með frammistöðu okkar."
„Varnarleikurinn hjá liðinu er ekki boðlegur og langt frá því sem við höfum sýnt undanfarin ár. Bara versta varnarframmistaða sem ég hef séð hjá Aftureldingarliðinu í mörg ár og eitthvað sem við þurfum að skoða gaumgæfilega fyrir næsta á leik."
Ætli það hafi gerst í sögunni áður að lið skori 7 mörk með 20.5% possession? pic.twitter.com/MZcl10SAAi
— JS el johann (@Eljohann4) April 28, 2026




