Haraldur Árni Hróðmarsson (1987), Halli Hróðmars, er að taka við sem aðstoðarþjálfari norska félagsins Egersund.
Liðið er í norsku fyrstu deildinni, með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjá leikina og situr í þriðja sæti með einn leik til góða á liðin fyrir ofan.
Egersund endaði í fimmta sæti deildarinnar á síðasta tímabili. Egersund er um 12 þúsund manna bær á suðvestur horni Noregs. Samkvæmt Transfermarkt hefur einn Íslendingur leikið með Egersund, en Hannes Þ Sigurðsson lauk ferli sínum hjá félaginu árið 2016. Seinna það ár tók svo Ólafur Örn Bjarnason við sem þjálfari liðsins og var þar fram á sumarið 2018.

Marius Johansen (1995) tók við liðinu á dögunum og mun Halli aðstoða hann.
Halli hefur verið frá þjálfun frá því að hann var látinn fara frá Grindavík skömmu fyrir lok Lengjudeildarinnar síðasta sumar. Þar á undan hafði Þróttarinn verið aðstoðarþjálfari ÍA og Vals.