Teddy Sheringham telur að Morgan Gibbs-White væri hinn fullkomni arftaki Bruno Fernandes hjá Manchester United ef hann yfirgefur félagið.
Framtíð Fernandes, fyrirliða Manchester United, er óljós þegar horft er til næsta tímabils. Portúgalinn hafnaði tilboðum frá Sádi-Arabíu síðasta sumar og kaus að vera áfram á Old Trafford. Hins vegar er búist við því að hann verði aftur eftirsóttur í sumar og fái fjölmörg tilboð. Þá eru stjórnendur United undir mikilli pressu að bjóða miðjumanninum nýjan og bættan samning.

Og fari svo að Fernandes yfirgefi United telur fyrrum leikmaður liðsins, Teddy Sheringham, að Morgan Gibbs-White, leikmaður Nottingham Forest og enska landsliðsins, sé rétti maðurinn til að fylla skarð hans.
„Ég myndi líklega segja Morgan Gibbs-White. Ég held að Tottenham hefði vel getað notað hann þegar félagið reyndi að fá hann fyrir tímabilið," sagði Sheringham.
„Ég var nokkuð spenntur fyrir þeim möguleika hjá Tottenham. Það sést á honum að hann hefur metnað til að verða betri leikmaður, og ég held að hann eigi framtíð fyrir sér hjá stærra félagi. Hann myndi smellpassa inn í liðið hjá Manchester United."