Stjóramál Chelsea, Wissa gæti verið seldur og Delap vill berjast fyrir stöðu sinni. Þetta og fleira í slúðurpakkanum í boði Powerade. BBC tók saman.
Chelsea hefur bætt Xabi Alonso (44), fyrrum stjóra Real Madrid, og Marco Silva (48), stjóra Fulham, á lista yfir mögulega stjórakosti. (Sun)
Bayern München mun hefja viðræður við enska sóknarmanninn Harry Kane (32) um nýjan samning eftir tímabilið. Núgildandi samningur hans er út næsta tímabil. (Mirror)
Newcastle skoðar það að selja framherjann Yoane Wissa (29), innan við ári eftir að hafa keypt Kongómanninn frá Brentford. (Athletic)
Enski sóknarmaðurinn Liam Delap (23) vill vera áfram hjá Chelsea og berjast fyrir stöðu sinni. Chelsea mun skoða sóknarmannamál sín í sumar. (Telegraph)
Barcelona hefur sett sig í samband við Atletico Madrid til að skoða hvort argentínski sóknarmaðurinn Julian Alvarez (26) sé fáanlegur í sumar. (ESPN)
Framtíð Scott Parker sem stjóri Burnley er í óvissu eftir fall liðsins úr ensku úrvalsdeildinni. Steven Gerrard, fyrrum stjóri Rangers og Aston Villa, gæti verið kostur fyrir félagið. (TalkSport)
Gerrard, sem stýrði síðast Al-Ettifaq í Sádi-Arabíu, er einnig á blaði hjá Bristol City í Championship-deildinni. (Independent)
Jadon Sancho (26) færist nær endurkomu til Borussia Dortmund en Aston Villa bindur enn vonir við því að geta fengið hann þegar hann verður samningslaus í sumar. (Teamtalk)
Liverpool gæti misst af Yan Diomande (19) en talið er líklegt að hann verði að minnsta kosti eitt ár í viðbót hjá RB Leipzig. (Christian Falk)
AC Milan og Bayern München hafa áhuga á serbneska sóknarmanninum Dusan Vlahovic (26) ef hann endurnýjar ekki samning við Juventus. (Sky Sports)



